1 af 102
Um eignina
Ásmundur Skeggjason fasteignasali kynnir glæsilegt einbýlishús á einni hæð með fjórum svefnherbergjum og aukinni lofthæð. Eignin stendur á einstaklega friðsælli og skjólgóðri endalóð. Við húsið er um 150 fm viðarpalli til suðurs með fallegu útsýni yfir Garðabæ. Á lóðinni eru næg bílastæði, með pláss fyrir fjóra bíla og hjólhýsi á hellulagðri innkeyrsla. Skipti möguleg á minni eign.
Skoðaðu 3 D myndir af eigninni hér
Við inngang tekur á móti parketlögð forstofa. Innaf forstofu er gestasalerni með sturtu, þar sem bæði gólf og veggir eru flísalagðir.
Úr forstofu er innangengt í rúmgóðan, um 50 fm bílskúr með tvíbreiðri bílskúrshurð sem er 2,4 metrar á hæð.
Frá forstofu er einnig komið inn í miðrými hússins sem nýtist vel sem sjónvarpsherbergi. Þar er parket á gólfi.
Þaðan er gengið inn í opið og bjart alrými, um 60 fm að stærð, þar sem eldhús og stofa mynda samfellda heild. Eldhúsið er með sérsmíðaðri eldhúsinnréttingu og eru bæði eldhús og stofa parketlögð. Úr stofu er útgengt um rennihurð út á verönd og garð.
Í húsinu eru þrjú barnaherbergi. Tvö þeirra eru um 15 fm, parketlögð og með fataskápum. Þriðja barnaherbergið er um 12 fm, einnig parketlagt og með fataskáp.
Hjónasvíta er rúmgóð, um 25 fm, með innangengu fataherbergi og útgengi út á pall. Bæði hjónaherbergi og fataherbergi eru parketlögð. Fataherbergi má auðveldlega breyta í baðherbergi þar sem allar lagnir eru þar til staðar.
Aðalbaðherbergi hússins er flísalagt og búið baðkari, walk-in sturtu og baðinnréttingu. Innaf baðherbergi er rúmgott þvottahús.
Húsið er búið KNX hússtjórnunarkerfi sem stýrir lýsingu, hitakerfi og hluta af gluggatjöldum. Kerfið er fulluppsett og frágengið með mjög notendavænu viðmóti.
Hér er á ferðinni gott vel staðsett einbýli á eftirsóttum stað í Garðabæ, í göngufæri við leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og íþróttastarfsemi. Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason fasteignasali, asmundur@hofdi.is, Gsm 895 3000.-

Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurÍ sölu núnaÁsett verð · Höfði Fasteignasala
239.000.000 kr.910 þ./m²
+273,4% á 13 árum
8. nóvember 2013Fyrsta sala
64.000.000 kr.244 þ./m²
Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Rjúpnahæð 14
210 Garðabær
239.000.000 kr.910 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár2013TegundEinbýlishúsStærð262,6 m²Herbergi5InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF23261245Fasteignamat206.950.000 kr.Brunabótamat150.650.000 kr.
Skráð hjá
Höfði Fasteignasala
HeimilisfangSuðurlandsbraut 52 108 Reykjavík, Suðuðurlandsbraut 52 ReykjavíkSími533-6050
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 102 myndir
Upp ↑