fasteignasölur.is
Móstekkur 86
1 af 29

Um eignina

Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu parhúsið Móstekk 86, Selfossi.  Steinsteypt vandað parhús. Fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi og sjónvarpshol.  Heildarstærð er 205,6 fm en þar af er sambyggður bílskúr 43,2 fm.  Seljandi skoðar skipti á ódýrari eign. 

Húsið afhendist fullbúið að utan.  Steinað að utan með ljósri steiningu. Álþakkantur, ál/tré gluggar, litað járn á þaki. Bílskúrshurð frá Héðinshurðum uppsett..Húsið er staðsteinsteypt. Húsið er í byggingu og afhendist á byggingarstigi B2.þ.e. fullbúið að utan og að innan eru útveggir múraðir og tilbúnir til fínspörtlunar. Rakasperra í lofti er frágengin.  Gólfhitalagnir eru ísteyptar. Neysluvatnslagnir eru í steyptar rör í rör. Búið er að greiða fyrir inntök vatns og rafmagns. 

Mögulegt er að fá húsið lengra komið eftir nánara samkomulagi.

Innra skipulag skv. teikningu:
Forstofa.
Mjög rúmgóð stofa og eldhús.
Alls eru fjögur svefnherbergi. Innaf hjónaherbergi er sérbaðherbergi.   
Sjónvarpshol. 
Þvottahús. Innangengt er í bílskúr úr þvottahúsi.
Bílskúr er rúmgóður. 

Lóð grófjöfnuð.  Möl í plani.

Hafðu samband við Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996  steindor@husfasteign.is  varðandi skilalýsingu og nánari upplýsingar

,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       
                                                                                                          
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
5. Skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

Móstekkur 86

800 Selfoss
TegundRað-/parhúsStærð205,6 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.2
84.000.000 kr.409 þ./m²
Byggingarár2026InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2535717Fasteignamat71.000.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangAusturvegi 26, Selfoss, Strandgötu VestmannaeyjumSími497-1155

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑