fasteignasölur.is
Suðurvangur 2
1 af 27

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir: Bókaðu skoðun. Eignin er laus fljótlega eftir kaupsamning.
Mjög björt og falleg 4ra herb. 118,5fm endaíbúð ásamt sérmerktu bílastæði á bílaplani. Íbúðin var öll endurinnréttuð 2023, íbúðin skiptist í forstofuhol, eldhús með vandaðri innréttingu og tækjum, stór og björt stofa, 3 svefnherbergi, baðherbergi og vel innréttað þvottahús. Allar innréttingar, fataskápar, hurðar, gólfefni og tæki voru endurnýjuð 2023 ásamt gluggum að undanskildum gluggum í svefnherbergjum sem voru endurnýjaðir 2016. 
Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Löggiltur fasteignasali í síma: 822-2225 eða á thora@fstorg.is

Sækja söluyfirlit hér

Nánari lýsing: 
Forstofuhol með flísum og harðparketi á gólfi.
Eldhús með sprautulakkaðri innrétting og miklu skápapláss, flísar á veggjum. Eldhústæki eru vönduð og ísskápur og frystir fylgja, flísalagt gólf.
Stofa / borðstofa er mjög rúmgóð og björt, harðparket á gólfi og útgengi á stórar suð-vestur svalir.
Svefnherbergishol tengir 3 svefnherbergi og baðherbergi.
Hjónaherbergi
 er rúmgott með stórum fataskápum og harðparketi á gólfi.
Barnaherbergi eru 2, annað herbergið er með góðum fataskáp, harðparket á gólfum.
Baðherbergi er með hvítri innréttingu og speglaskáp, upphengt salerni, baðkar með sturtuaðstöðu og handklæðaofn, gólf er flísalagt og hluti veggja. 
Þvottahús er innan íbúðar og með góðri innréttingu og skápaplássi, gluggi er á þvottahúsinu og flísalagt gólf.
Sér 5,8fm geymsla í sameign auk sameignlegrar vagna og hjólageymslu.
Bílastæði sérmerkt íbúðinni er á bílaplani.
Mjög rúmgóð og mikið endurnýjuð endaíbúð þar sem stutt er út á stofnbrautir og þjónustu í hverfinu.

​​​​Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Löggiltur fasteignasali í síma : 822-2225 eða á thora@fstorg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða  1.6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 3.800,-
3. Lántökugjald lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900,- með vsk.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasalan TORG
74.900.000 kr.632 þ./m²
+87,3% á 9 árum
3. júlí 2017Þinglýstur kaupsamningur
40.000.000 kr.338 þ./m²
+42,9% á 1 ári
13. desember 2016Fyrsta sala
28.000.000 kr.236 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Suðurvangur 2

220 Hafnarfjörður
74.900.000 kr.632 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1969TegundFjölbýlishúsStærð118,5 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF207993616Fasteignamat71.300.000 kr.Brunabótamat58.000.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan TORG
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 27 myndir

Upp ↑