fasteignasölur.is
Vefarastræti 20
1 af 19

Um eignina

** Hafðu samband og bókaðu skoðun -  Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg 59,0 m2, 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í lyftuhúsi við Vefarastræti 20 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 59,0 m2, þar af íbúð 51,7 m2 og geymsla 7,3 m2. Eignin skiptist í stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi/þvottaherbergi. Sérgeymsla er í sameign í kjallara. Vandaðar innréttingar og innfelld lýsing hönnuð af Lúmex. Afgirtur sérafnotareitur í austurátt. Frábær staðsetning rétt við grunnskóla, leiksskóla og fallegar gönguleiðir. Stutt í næstu strætóstoppistöð. 

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent


Nánari lýsing:
Stofa og eldhús eru í opnu rými með parketi á gólfi. Í eldhúsi er falleg innrétting með blástursofni, helluborði, háf og innbyggðum litlum ísskápi. Fataskápur er við stofu. Úr stofu er gengið út á afgirta verönd með hellum og grasi.
Svefnherbergi (hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi/þvottaherbergi er flísalagt, með innréttingu, upphengdu salerni og 'walk in' sturtu. Í innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara. 
Sérgeymsla er í sameign í kjallara, skráð 7,3 m2.

Húsið: Húsið er staðsteypt, klætt báruáli frá Áltak. Innsteypt innfelld lýsing er undir svölum. Hiti undir steyptri stétt. Rafmagnsopnari í anddyrum, póstkassar og mynddyrasími. Teppa- og flísalögð sameign. Lýsing frá Lumex í sameign. Hljóðplötur í sameign til að dempa hljóð utan íbúðar. Hjóla og vagnageymsla er í sameign. Sameignilegar hleðslustöðvar eru við bílastæði.

Verð kr. 56.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasala Mosfellsbæjar
56.900.000 kr.964 þ./m²
+4,4% á 4 árum
30. maí 2022Þinglýstur kaupsamningur
54.500.000 kr.924 þ./m²
+65,2% á 4 árum
14. september 2018Fyrsta sala
33.000.000 kr.559 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Vefarastræti 20

270 Mosfellsbær
56.900.000 kr.964 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2017TegundFjölbýlishúsStærð59 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF23594595Fasteignamat50.950.000 kr.Brunabótamat42.500.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasala Mosfellsbæjar
HeimilisfangKjarni - Þverholti 2, 270Sími586-8080

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 19 myndir

Upp ↑