fasteignasölur.is
GARÐARSVEGUR 12
1 af 31

Um eignina

Byr fasteignasala kynnir í einkasölu Garðarsvegur 12, 710 Seyðisfjörður. Einbýlishús með þremur svefnherbergjum og innbyggðum bílskúr

Skipulag eignar: Hæð (neðri pallur): Anddyri, eldhús og borðstofa, stofa. Hæð (efri pallur): þrjú svefnherbergi, baðherbergi. Kjallari: Anddyri, þvottahús, bílskúr og geymsla. 
Húsið er steypt, byggt 1966. Eignin skiptist í íbúð 96.8 m², íbúð í kjallara 19.2 m² og bílskúr 29.4 m², samtals 145.4 m² samkvæmt skráningu HMS.

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Nánari lýsing: 
Anddyri/forstofa og gangur, parket á gólfi, gangur liggur að öðrum rýmum. 
Eldhús, innrétting, helluborð, vifta og ofn í vinnuhæð, uppþvottavél og tvöfaldur ísskápur (fylgir með), borðkrókur, parket á gólfi. 
Stofa, parket á gólfi, stór gluggi sem snýr í suðurátt. 
Frá gangi liggur stigi niður í kjallara og tröppur að efri palli hússins, tröppurnar eru parketlagðar, gangur með parketi á gólfi sem liggur í herbergin.
Hjónaherbergi, stór tvöfaldur IKEA fataskápur með rennihurðum, parketi á gólfi.
Herbergi I, Þrefaldur fataskápur, parketi á gólfi.
Herbergi II,  án fataskáps, parketi á gólfi. 
Baðherbergi, flísar í hólf og gólf, baðherbergis innrétting með einum vaski, upphengt salerni og sturta með hengi. Gluggi.
Stigi niður í kjallara, flísalagður. Þvottahús og forstofa í einu rými, útgengt í bakgarð um steyptan stiga. Flísar á gólfi. Í þvottahúsinu er pláss fyrir tvær vélar á gólfi. Inntaksrými er inn af þvottahúsi, flísar á gólfi. 
Bílskúr er með flísar á gólfi. Nýleg bílskúrshurð með hurðaopnara. Geymsluskot inn af bílskúr með flísum á gólfi

Garðarsvegur 12 er steypt hús á pöllum, hæðir eru klæddar að utanverðu með járnklæðningu. Húsið hefur fengið gott viðhald undanfarin ár; rafmagn yfirfarið - rofar og tenglar nýlegir, ofnar eru nýlegir, gólfefni, hurðar, eldhús og baðherbergi hefur fengið endurnýjun á undanförnum árum. 
Tvíhalla þak, járn á þaki, timburgluggar og hurðar. Báðir hlutar þaksins hafa verið endurnýjaðir. 
Steypt stétt er framan við húsið, steyptar tröppur upp að inngangi. Steypt bílastæði framan við bílskúr.
Timburverönd er við suðurhlið hússins, þar er gróðurbeð, hænsnakofi (hænur geta fylgt með) og kaldur geymsluskúr. Lóð er gróin og blómleg, runnar eru vel snyrtir. 
Lóð er gróin, 846.0 m² leigulóð í eigu Múlaþings, lóðarleigusamningur frá 11. september 1969, skjal nr. 426-F-000027/BIII.

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |
 
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 216-8453.

Stærð: 01.0101 Íbúð 96,8 m². 01.0001 íbúðarherbergi í kjallara 19.2 m². 01.0002 Bílskúr 29.4 m² Samtals 145.4 m².
Brunabótamat: 65.150.000 kr.
Fasteignamat: 41.600.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2027: 40.500.000 kr. 
Byggingarár: 1966.
Byggingarefni: Steypt
 


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

GARÐARSVEGUR 12

710 Seyðisfjörður
47.500.000 kr.327 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1966TegundEinbýlishúsStærð145,4 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF21684531Fasteignamat41.600.000 kr.Brunabótamat65.150.000 kr.
Skráð hjá
Byr fasteignasala
HeimilisfangMiðvangur 2-4, 700 EgilsstaðirSími471-2858

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑