fasteignasölur.is
Kerhraun B 114
1 af 50

Um eignina

Kerhraun, sumarhús inn á lokuðu svæði.  Hitaveita, heitur pottur.
 
Glæsilegt sumarhús við Kerhraun B 114 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Steypt plata, hitaveita, heitur pottur, lokað svæði með hliði (símahlíð). Í þessu húsi er gólfhiti.
Fasteignaland kynnir:  Kerhraun B 114 sumarhús inn á skipulögðu sumarhúsasvæði í Grímsnes-og Grafningshreppi.  Húsið er skráð samkvæmt Húsnæðis-og mannvirkjastofnun 121,6 fm fm auk 12,9 fm milliloft eða samtals 134,5 fm samkvæmt Húsnæðis-og mannvirkjastofnun. Húsið var byggt árið 2022 og er afar vandað og vel um gengið.  
Húsið  stendur á 6.6.643 fm eignarlóð með glæsilegu útsýni.  Möguleiki er að fá hluta af innbú með í kaupum á eigninni.


Lýsing á eign: Forstofa með flísum á gólfi og góðu skápaplássi. Þrjú herbergi með vínyl parketi á gólfi. Herbergisgangur er vinyl parketi á gólfi.  Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sturtu og fallegri dökkri viðarinnréttingu með steinborði. Útgengi út á suður sólpall. Þvottahús með flísum á gólfi og tengið fyrir þvottavél og þurrkara. Útgengi út á austurhlið hússins.  Stofan og eldhúsið er í sama rými með góðri lofthæð, vinyl parket á gólfi. Eldhúsið er með fallegri dökkri innréttingu með stein á borði og vönduðum tækjum. Stofa með ethanol arni.

Milliloft: Milliloft er með vinyl peketi á gólfi og nýtt sem svefnloft.
 
Stór sólpallur með girðingu og skjólgirðingu, heitum potti.

Um er að ræða vandað heilsárshús með fallegu útsýni á eftirsóttum stað í Grímsnes-og Grafningshreppi.
Möguleiki er að fá hluta af búslóð með í kaupum á eigninni.
Góð aðkoma og næg bílastæði.

Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll,í þróttavöll og fallegar gönguleiðir.  Akstur frá Reykjavík ca. 1 klst.
Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu erum kr. 50.000 á ári.
 
Sjá link á sumarhúsafélagi:  kerhraun.is
Upplýsingar gefa: 
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali s. 8931485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasasli s. 8606400, netfang: jonsmari@fasteignaland.is

Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali s. 8980508 netfang: arni@fasteignaland.is

 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignaland
91.900.000 kr.683 þ./m²
+5,6% á 3 árum
13. október 2023Fyrsta sala
87.000.000 kr.647 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Kerhraun B 114

805 Selfoss (dreifbýli)
91.900.000 kr.683 þ./m²
Sumarhús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2022TegundSumarhúsStærð134,5 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF234447111Fasteignamat68.500.000 kr.Brunabótamat77.800.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignaland
HeimilisfangSkeifan 2, 108Sími599-6700

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 50 myndir

Upp ↑