fasteignasölur.is
Engihjalli 17
1 af 48

Um eignina

REMAX fasteignasala kynnir:
LAUS VIÐ KAUPSAMNING Björt 3ja herbergja íbúð með stórum svölum
Björt og vel skipulögð 78,1 fm, 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi. Íbúðin er vel staðsett, stutt í verslun og þjónustu, skóla og leikskóla. Sérlega stórar austursvalir ná eftir endilangri íbúðinni og bjóða upp á gott útisvæði.

Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Gíslason lögg.fasteignasali í síma 694-4700 eða steini@remax.is



ÍBÚÐ
Komið er inn í rúmgott gang/hol þaðan sem gengið er inn í önnur rými íbúðarinnar.
Eldhús er með eldri innréttingu og borðkrók. Uppþvottavél fylgir með.
Stofa er rúmgóð og þaðan er útgengi á stórar austursvalirnar sem ná eftir endilangri íbúðinni.
Hjónaherbergi og barnaherbergi eru bæði með eldri fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt og með baðkari með sturtuhengi. Innrétting við og undir vask er eldri.
Möguleiki er á að einhver húsgögn fylgi með.

SAMEIGN
Snyrtileg sameign. Sérgeymsla íbúðar er í kjallara og sameiginlegt þvottahús er á hæðinni.
Góð staðsetning, stórar svalir og vel skipulögð íbúð sem býður upp á mikil tækifæri til endurnýjunar og útfærslu eftir smekk nýrra eigenda.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Remax því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun

Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Gíslason lögg.fasteignasali í síma 694-4700 eða steini@remax.is
 

Engihjalli 17

200 Kópavogur
51.900.000 kr.665 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1979TegundFjölbýlishúsStærð78,1 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF20600501Fasteignamat53.700.000 kr.Brunabótamat43.800.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 48 myndir

Upp ↑