fasteignasölur.is
Smyrilshlíð 1
1 af 24

Um eignina

Böðvar Sigurbjörnsson og Borg fasteignasala kynna til sölu: Smyrilshlíð 1, 102 Reykjavík - Glæsileg 4 herbergja 113,7 m2 íbúð á fyrstu hæð í nýlegu vel staðsettu fjölbýlishúsi í Hlíðarendahverfinu.

**Aukin lofthæð**  **Stæði í bílageymslu **  ** Þvottahús með glugga innan íbúðar**  

Skipulag: Anddyri, þvottahús, gangur, baðherbergi, 3 svefnherbergi, eldhús, borðstofa og stofa, svalir, geymsla og stæði í bílageymslu. 

Nánar: Komið er inn í anddyri íbúðarinnar, þar er tvöfaldur skápur. Alrými íbúðarinnar eru parketlögð, að undanskyldum votrýmum sem eru flísalögð.  Inn af anddyri er þvottahús með gólfsíðum glugga. Hvít innrétting með skápum ofan og neðan borðplötu, skolvaskur í borðplötu, hólf fyrir þvottavél og þurrkara, gólfsíður skápur, þurrkgrind fyrir ofan vask. Baðherbergið er rúmgott með "walk in" sturtu, stórar hvítar flísar á veggjum sturtunnar. Hvít baðherbergisinnrétting með skúffum neðan borðplötu, stór speglaskápur með borðlýsingu fyrir ofan handlaug. Upphengt salerni með innbyggðum kassa og handklæðaofn. Opið er frá eldhúsi yfir í stofu og borðstofu, stór gólfsíður gluggi er í stofunni. Eldhúsinnrétting á einum vegg með skápum ofan borðplötu sem ná til lofts, borðlýsing og góðar hirslur neðan borðplötu. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, spanhelluborð með viftu fyrir ofan og borðkrókur með sérsmíðuðum eldhúsbekk. Frá stofunni er gengið út á yfirbyggðar svalir sem snúa í suð - vestur. Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni og eru þau öll með góðum fataskápum.       

Annað: Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu merkt, E058, sér geymsla 10 m2  merkt 0027 og hlutdeild í sameiginlegri hjóla - og vagnageymslu. Í öllum gluggum íbúðarinnar eru vandaðar plíseraðar myrkvunargardínur sem hægt er að draga upp og niður. 

Nánari upplýsingar veitir Böðvar Sigurbjörnsson, lögfræðingur M.L. og lgf., í síma 660-4777 eða bodvar@fastborg.is

Sjá einnig:
fastborg.is/
Smelltu hér til að fylgjast með mér á Facebook
Smelltu hér til að fylgja mér á Instagram

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um skyldu kaupenda til að skoða fasteignir.
BORG fasteignasala vill því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna áður en gert er kauptilboð og leita til hæfra sérfræðinga til frekari skoðunar.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða fyrir kaupin:
Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8 / 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald kaupsamnings, veðskuldabréfs, hugsanlegt veðleyfi o.fl.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýslugjald vegna fasteignasölu samkvæmt kauptilboði

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Borg Fasteignasala
103.900.000 kr.914 þ./m²
+57,7% á 6 árum
28. janúar 2021Fyrsta sala
65.900.000 kr.580 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Smyrilshlíð 1

102 Reykjavík
103.900.000 kr.914 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2021TegundFjölbýlishúsStærð113,7 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF250746321Fasteignamat99.550.000 kr.Brunabótamat70.390.000 kr.
Skráð hjá
Borg Fasteignasala
HeimilisfangSíðumúli 23, 108 ReykjavíkSími519-5500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑