fasteignasölur.is
Súðarvogur 2
1 af 64

Um eignina

 Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna, Súðarvog 2, íbúð 0105 fnr. 251-2081

Íbúðin er skráð hjá þjóðskrá 125,4fm 5 herbergja íbúð og þar af er geymsla á jarðhæð 4,7 fm. Skráð byggingarár hússins er 2022. Húsið er 4 hæða og er íbúðin á 1. hæð hússins.  Íbúðin skiptist í opið alrými þar sem stofa og eldhús mynda eitt rými. fjögur rúmgóð svefnherbergi , stofa og eldhús, baðherbergi og sér þvottahús. Útgengt út úr stofu á rúmgóðan sólpall til suðurs.  Sér bílastæði í lokuðum bílakjallara. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla. 

FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.

Nánari lýsing:

Forstofa: Parket á gólfi. Rúmgóður fataskápur. 

Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Útgengt á sólpall með skjólveggjum til suðurs.  

Eldhús: Glæsileg ítölsk innrétting. Eyja með spansuðuhelluborði og háfi yfir. Bakstursofn í vinnuhæð. Innbyggður kæli/frystiskápur og uppþvottavél. 

Svefnherbergi: Eru fjögur talsins og er parket á gólfum þeirra allra sem og fataskápar. 

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Góð sturta með glerþili. Innretting með efri og neðri skápum og með steinborðplötu. Upphengt salerni og handklæðaofn. 

Pallur: Lokaður pallur með skjölveggjum sem snýr til suðurs. Sælureitur í góðu veðri og góð viðbót við íbúðina. 

Geymsla: Geymsla er innan íbúðar með innbyggðum tvöföldum kæliskáp og svo er 4,7 fm læst geymsla á jarðhæð. 

Stæði í bílageymslu: Stæði með rafhleðslustöð.

Súðarvogur 2 er falleg 5 herbergja íbúð með vönduðum innréttingum frá ítalska framleiðandanum Gili Creation, gólfhiti, gólfsíðir gluggar, vínilparket frá Gólfefnavali.  Baðherbergi og þvottahús með flísum frá Gili Creation. Silestone kvartsteinn á borðum.  Innbyggður ísskápur og uppþvottavél í eldhúsi.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s: 861-7507 eða á daddi@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
 

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
102.900.000 kr.821 þ./m²
+10,6% á 2 árum
31. maí 2024Þinglýstur kaupsamningur
93.000.000 kr.742 þ./m²
+0,9% á 2 árum
9. ágúst 2022Fyrsta sala
92.200.000 kr.735 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Súðarvogur 2

104 Reykjavík
102.900.000 kr.821 þ./m²
Fjölbýlishús4 svefn · 1 bað
Byggingarár2022TegundFjölbýlishúsStærð125,4 m²Herbergi5InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF25120811Fasteignamat94.700.000 kr.Brunabótamat78.500.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 64 myndir

Upp ↑