Um eignina
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýlegt og vandað 108 m2 atvinnuhúsnæði á stórri lóð við Bugðufljót 17D á Tungumelum í Mosfellsbæ. Búið er að leggja inn teikningar fyrir millilofti (64,5 m2) og búið að greiða gatnagerðargjöld af þeirri þeirri framkvæmd en milliloftið hefur ekki verið byggt. Eignin er skráð 154,5 m2, þar af atvinnurými 108,0 m2 og milliloft um 46,5 m2.
Eignin er í dag stór vinnusalur og salerni. Tvær inngönguhurðir og tvær stórar innkeyrsluhurðir (4,2X4 m og 3X3 m) með rafmagnsopnun. Eigninni fylgja 5 bílastæði á lóð. Þrjú bílastæði á baklóð og tvö bílastæði fyrir framan innkeyrsluhurð. Húsið er reist úr forsteyptum einingum frá BM Vallá. Sér hiti og rafmagn er í rýminu. Áhvílandi er á eigninni vsk kvöð og miðast söluverð við að kaupandi yfirtaki kvöðina.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánar um húsið: Útveggjaeiningar eru frá Smellinn samlokueiningar með VÖLUN að utanverðu, veðurkáða 7 sm, einangrun 10 sm og burðarveggur 15 sm. Þakið eru yleiningar (Sandwich) og límtré. Annar hver milliveggur milli bila eru steinsteyptar einingar og annarhver er yleiningar. Yfirborð steyptra veggja að innan er grófpússað eða ómeðhöndlaðir úr steypumótum frá Smellin. Yfirborð yleiningar er lakkað málmyfirborð. Bílaplan er fullfrágengið malbikuð/hellulögð með niðurföllum, olíuskilju og sorpaðstöðu.
Verð kr. 59.000.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Bugðufljót 17D
Staðsetning
Allar 11 myndir
Upp ↑









