Um eignina
PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.
Perla Investments kynnir:Sérhæð með glæsilegu útsýni
Björt og nútímaleg sér hæð með útsýni yfir Laguna Rosa eða bleika saltvatnið í Torrevieja.
Þessi glæsilega íbúð er með 2 rúmgóðum svefnherbergjum með innbyggðum fataskápum og 2 baðherbergjum. Bjart og rúmgott alrými með fullbúnu eldhúsi með heimilistækjum, borðstofu og stofu, þaðan sem útgengt er út á rúmgóðar svalir. Einnig fylgja stórar þaksvalir með stórglæsilegu útsýni yfir bleika saltvatnið þar sem möguleiki er að setja upp nuddpott.
Aðgangur að glæsilegum sameiginlegum garði fylgir einnig, sem vaktaður er með myndavélakerfi, en í honum er að finna barnalaug og aðra stærri sundlaug, líkamsræktar aðstöðu utandyra og margt fleira. Sér bílastæði í bílakjallara fylgir einnig íbúðinni.
Erum með mikið úrval eigna í þessum sama íbúðarkjarna
Þessi íbúðarkjarni er staðsettur rétt við „bleika“ saltvatnið í skemmtilegu og líflegu borginni Torrevieja. Fyrir náttúru unnendur er vinsælt að labba eða hjóla meðfram hinum áður nefndu salt vötnum, sem eru í göngufæri frá þessari glæsilegu eign, heimili hinna bleiku flamingo fugla og njóta þar fjölbreyttrar og fallegrar náttúru og lífríkis. Í 15 mínútna fjarlægð er svo hinn spennandi og alþjóðlegi miðbær Torrevieja, 5 golfvellir, 2 verslunarmiðstöðvar, frábært úrval veitingastaða, bara og kaffihúsa, vatnsrennibrautargarður sem og tvö heimsklassa sjúkrahús og mikið úrval hágæða spænskra sem og alþjóðlegra skóla.
Þessi eign er frábærlega staðsett til, hvort sem er, langtíma eða skammtíma dvalar.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!
Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á https://perlainvest.com/eign/7516/serhaed-med-glaesilegu-utsyni/
Ref: NB-39944
Fylgdu okkur á Facebook -www.facebook.com/Perlainvest
Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com . Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.
Bjóðum einnig uppá á leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/
Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu. Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com
Perla Inv. - Sérhæð með glæsilegu útsýni
Allar 22 myndir
Upp ↑




















