fasteignasölur.is
Veghús 31
1 af 38

Um eignina

Rúmgóð og vel skipulögð fimm herbergja útsýnisíbúð á 8.hæð í lyftuhúsi við Veghús 31. Eign með glæsilegu útsýni og rúmgóðum svölum. Stæði í bílageymslu fylgir eigninni. Geymsla íbúðar er við inngagn íbúðar. Sér þvottahús er innan íbúðar. Eignin er laus við kaupsamning. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 114,2 fm. og þar af 13,0 fm stæði í bílakjallara.
Fasteignamat fyrir árið 2027 verður 73.550.000kr. 

Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými, baðherbergi, þvottahús, hjónaherbergi, þrjú svefnherbergi og geymslu við hliðina á við inngang inn í íbúðina.


Nánari lýsing eignar:
Anddyri er rúmgott með innbyggðu fatahengi og parketi á gólfi.
Stofa björt með fallegu útsýni og með parketi á gólfi. Útgengt er út á rúmgóðar svalir úr stofunni. Stofa og eldhús í einu samliggjandi og opnu rými.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, helluborð, gufugleypir, ofn, tengi fyrir uppþvottavél, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu og parket á gólfi. 
Þvottahús er inn af eldhúsi með skolvask og flísum á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II með fataskáp og parketi á gólfi. 
Svefnherbergi III með nýlegu parketi á gólfi. 
Svefnherbergi IIII með fataskáp og parket á gólfi.  Í einhverjum íbúðum hefur það verið tekið niður og við það stækkað stofuna. 
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, snyrtileg innrétting, flísar í kringum baðkar og á gólfi. 
Geymsla við hliðina á við inngang í íbúðina með hillum. 
Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni. Þrifaðstaða fyrir bíla í bílageymslu og dekkjahótel.

Hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð. 

Endurnýjanir:
2025: Nýjar lyftur, teppi endurnýjuð í sameign og hún máluð.
2016-2024: 
- Nýr myndavéladyrasími.
- Lagt fyrir og settar upp tvær hleðstöðvar í sameign.
- Ný bílskúrshurð 2024.

Góð staðsetning í hinu gróna Húsahverfi, þar sem stutt er í skóla, leikskóla, golfvöll, kvikmyndahús, sundlaug, skíðabrekku, skautahöll, skemmtilegar gönguleiðir, verslun og ýmsa aðra þjónusta. Einnig er stutt út á helstu stofnbrautir. 

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is 
 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
74.900.000 kr.656 þ./m²
+205,7% á 12 árum
16. maí 2014Þinglýstur kaupsamningur
24.500.000 kr.215 þ./m²
+14,0% á 7 árum
26. mars 2007Fyrsta sala
21.500.000 kr.188 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Veghús 31

112 Reykjavík
74.900.000 kr.656 þ./m²
Fjölbýlishús4 svefn · 1 bað
Byggingarár1991TegundFjölbýlishúsStærð114,2 m²Herbergi5InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF20408283Fasteignamat72.850.000 kr.Brunabótamat56.380.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 38 myndir

Upp ↑