fasteignasölur.is
Asparskógar 5
1 af 16

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir fallega, bjarta og vel skipulagða 3ja–4ra herbergja íbúð á 2. hæð, alls 83,8 fm.

Íbúðin er vel nýtt og býður upp á möguleika á að nýta geymslu innan íbúðar sem þriðja svefnherbergi. Á gólfum eru parket og flísar, og stórir gluggar tryggja góða birtu.

Baðherbergið er með sturtu, flísalögðu gólfi og flísalögðum tveimur veggjum. Þar eru tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Eldhúsið er í opnu alrými með fallegri innréttingu og tengi fyrir uppþvottavél. Frá stofu er útgengt á suðaustursvalir.

Fataskápar eru í báðum svefnherbergjum auk fataskáps í anddyri. Geymsla er innan íbúðar, inn af anddyri.

Í húsinu við Asparskóga 5B er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á 1. hæð.

Asparskógar 5B er staðsett í fjölskylduvænu og vinsælu íbúðahverfi á Akranesi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Í nágrenninu eru leikskólar, grunnskólar og fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf fyrir alla aldurshópa.

Stutt er í verslanir, matvöruverslanir, og aðra daglega þjónustu. Akranes býður upp á öflugt samfélag og góða aðstöðu fyrir fjölskyldufólk sem og aðra sem vilja njóta rólegs og þægilegs bæjarlífs.


Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr.  3.800.- kr. af hverju skjali.  
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.  
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Asparskógar 5

300 Akranes
67.900.000 kr.810 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2023TegundFjölbýlishúsStærð83,8 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF25218449Fasteignamat57.550.000 kr.Brunabótamat53.750.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan TORG
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 16 myndir

Upp ↑