fasteignasölur.is
Ásgarður 2
1 af 41

Um eignina

Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu sex herbergja 175.4fm steypt einbýlishús ásamt 41.3fm innbyggðum bílskúr. 
Birt stærð eignarinnar er 216.7fm. Rýmið á milli húss og bílskúrs óskráð og eignin er í raun um 222fm.


Eignin skiptist í forstofu, hol, geymslu, stofu, eldhús, þvottahús, tvö baðherbergi og sjö svefnherbergi ásamt bílskúr. Búið er að tengja saman hús og bílskúr svo innangengt er í skúrinn. Búið er að útbúa þar fullbúið baðherbergi og svefnherbergi í hluta bílskúrs.

Forstofa er flísalögð og þar er góður skápur. 
Geymsla inn af forstou er parketlögð.
Í eldhúsi er parket á gólfi, þar er  vegleg eikar-innrétting ásamt góðum tækjum, helluborð, ofn og háfur. Allt er nýlegt í eldhúsi.
Stofa er parketlögð og hurð er út á afgirta verönd frá stofu. Eldhús og stofa liggja saman í stóru og björtu rými.
Hol er parketlagt.
Á baðherbergi eru flísar á gólfi og á veggjum, þar er hvít innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturtuaðstaða stúkuð af með gleri.
Þvottahús er inn af eldhúsi, þar er eikar-innrétting og góður skápur og hurð er út á lóð frá þvottahúsi.
Svefnherbergin eru sjö og eru þau öll parketlögð. Hurð er út á verönd frá hjónaherbergi.

*Stór og góð afgirt timburverönd er á baklóð með heitum potti, stórum geymsluskúr og glerskýli.
*Allar innihurðir eru nýlegar. 
*Búið er að endurnýja neyslulangir og forhitari er á miðstöðvarkerfi.
*Nýlegar raflagnir eru í milliveggjum ásamt rofum og tenglum. 
*Búið er að endurnýja þakjárn og þakkant.
*Búið er að endurnýja flesta glugga og útidyrahurðir.
*Steypt loftplata er í húsinu.
*Innkeyrsla er hellulögð með hitalögn.    

Nánari upplýsingar um eignina veitir:
Halldór Magnússon lfs. 
s. 420-4000 / 863-4495
dori@studlaberg.is 

 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Stuðlaberg
121.900.000 kr.563 þ./m²
+304,0% á 15 árum
24. mars 2011Fyrsta sala
30.175.000 kr.168 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Ásgarður 2

230 Reykjanesbær
121.900.000 kr.563 þ./m²
Einbýlishús5 svefn · 2 bað
Byggingarár1973TegundEinbýlishúsStærð216,7 m²Herbergi6InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF20868763Fasteignamat105.400.000 kr.Brunabótamat112.650.000 kr.
Skráð hjá
Stuðlaberg
HeimilisfangHafnargata 20, 230Sími420-4000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 41 myndir

Upp ↑