fasteignasölur.is
Þórsgata 25
1 af 25

Um eignina

Miklaborg kynnir bjarta og fallega fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð í fjórbýlihúsi á frábærum stað við Þórsgötu í 101 Reykjavík. Húsið og íbúðin hefur fengið gott og reglulegt viðhald í gegnum árin. Búið er að breyta íbúðinni frá upphaflegum teikningum. Húsið er nýlega viðgert og málað að utan. Stigangur er nýlega uppgerður, teppalagður og málaður, svo og svalir og svalahurðir.


Íbúðin skiptist í stofu, rúmgott hjónaherbergi, svefnherbergi, sjónvarpsstofu/herbergi, eldhús og baðherbergi. Skjólgóðar svalir og sér þvottahús í kjallara. Viðargólf í öllum rýmum nema baðherbergi en þar eru flísar á gólfum. Innfelld lýsing.


Nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

Nánari lýsing:
Komið inn í rúmgóða forstofu með fataskáp.
Stofa er rúmgóð og björt . Gluggar í suður og vestur.
Eldhús er bjart og rúmott með nýlegri innréttingu. Eldhúsofn í vinnuhæð, innfelld uppþvottavél og ísskápur. Eldhús er opið við stofu sem myndar rumgott opið rými.
Sjónvarpsatofa er inn af stofu. Hægt er að loka með rennihurð.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum opnanlegum gluggum (tvö opnanleg fög á glugganum).
Herbergi er rúmgott með góðum opnanlegum glugga.
Baðherbergi með tveimur opnanlegum gluggum. Nýlega endurnýjað. Upphengt salerni og innbyggð blöndunartæki í sturtu og stór handklæðaofn.
Frá ytri forstofu er gengt á skjólgóðar svalir.
Í kjallara er sérgeymsla og þvottahús, einnig köld útigeymsla með inngangi beint frá götu.


Falleg eign á besta stað og stutt í alla þá veitingastaði, mennningu og þjónustu sem að miðborgin okkar hefur upp á að bjóða. Í göngufæri við Sundhöll Reykjavíkur, Landspítala, Háskóla Íslands, framhalds-, grunn- og leikskóla. Stutt í almenningssamgöngur með tengingar við öll hverfi höfuðborgarsvæðisins.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Miklaborg
94.900.000 kr.959 þ./m²
+132,0% á 11 árum
15. apríl 2015Fyrsta sala
40.900.000 kr.413 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Þórsgata 25

101 Reykjavík
94.900.000 kr.959 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1940TegundFjölbýlishúsStærð99 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2006038Fasteignamat83.550.000 kr.Brunabótamat58.800.000 kr.
Skráð hjá
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑