fasteignasölur.is
Suðurgata 29A
1 af 36

Um eignina

HÁKOT fasteignasala og Daníel Rúnar Elíasson löggiltur fasteignasali sími: 431-4045 / 899-4045 auglýsa:
** SUÐURGATA 29A *Einbýlishús, kjallari, hæð og ris (157,9fm).

HÆÐ: Hæðin skiptist í forstofu, baðherbergi, eldhús, borðkrók og stofu.
Forstofan er lögð korkflísum og er þar einnig fatahengi, gangur er lagður plastparketi.
Baðherbergi. þar er sturtuklefi, lítil innrétting ásamt salerni, flísar á gólfi.
Eldhús og eldhúskrókur eru með parketi, eldri málið innrétting, rúmgóðum og stórum skápum, AEG eldavél og ofn.
Stofan með hnotu plastparketi, baðstofupanel upp að ca. 90 cm hæð.

RIS: Gengið er upp í ris úr forstofu, stiginn er teppalagður, komið er upp í hol með parketi,
4. herbergi (parket, undir súð).
Baðherbergi (innrétting, dökk spónarparket, þakgluggi)

KJALLARI: Sér inngangur er í kjallarann, sem er undir öllu húsinu, en hann býður upp á mikla möguleika, þvottahús er kjallaranum og skiptist hann í 4 stór rými ásamt anddyri og kaldri geymslu undir tröppum. steypt gólf.

ANNAÐ. Eignin þarfnast viðhalds s.s klæðning að utan, kjallari, verönd léleg o.fl Húsið var klætt að utan á 2 hliðum 2001, skipt um járn á þaki og þakglugga árið 2003. Skiptum um ofna og 5 glugga í kjallara 2020. Skipta um og gerðir upp gluggar á hæð og í risi (ca. 2000). Gluggar í kjallara eru upphaflegir. Rafmagn og lagnir hafa verið endurnýjaðar. Sett var ný drenlögn og drenmöl í kringum húsið 2005 og var grunnur hússins lagaður og málaður 2007. Lóðin er stór og afgirt. 

Allar upplýsingar í söluyfirlitinu eru fengnar hjá seljendum og úr opinberum gögnum. 

************
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hákot bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildar fasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, umboði, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Umsýslugjald kr. 49.600 (m/vsk).
4. Lántökugjald veðskuldabréfa samkvæmt gjaldskrá lánveitenda.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasalan HÁKOT
59.900.000 kr.379 þ./m²
+185,2% á 18 árum
13. janúar 2009Fyrsta sala
21.000.000 kr.133 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Suðurgata 29A

300 Akranes
59.900.000 kr.379 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1929TegundEinbýlishúsStærð157,9 m²Herbergi8InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF21022602Fasteignamat63.550.000 kr.Brunabótamat63.050.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan HÁKOT
HeimilisfangKirkjubraut 12, 300 AkranesSími431-4045

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑