fasteignasölur.is
Engjasel 85
1 af 74

Um eignina

Trausti fasteignasala kynnir bjarta og rúmgóða fjögurra herbergja íbúð að Engjaseli 85, 109 Reykjavík. Íbúðin er á þriðju hæð og er samtals 138,2 fm. þar af stæði í bílageymslu 24,1 fm. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu og baðherbergi. Geymsla í sameign er ekki í skráðum fermetrum.

Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp og flísar á gólfi.
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu og parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er með parket á gólfi og þaðan er útgengt á svalir.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Barnaherbergin eru tvö og eru bæði með parket á gólfi.
Baðherbergi er með snyrtilegri innréttingu, baðkari með sturtu yfir, flísar á gólfi og veggjum og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er í sameign.
Bílastæði í bílageymslu fylgir.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Sameiginlegt þvotthús er í sameign.

Íbúðin er á góðum stað í Seljahverfinu þar sem stutt er alla helstu þjónustu, t.d. leik- og grunnskóla, heilsugæslu og matvöruverslanir.

Nánari upplýsingar veitir Kristín María Stefánsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 837-1177 eða í tölvupósti á kristin@trausti.is eða Katarzyna Kleinschmidt aðstoðarmaður fasteignasala í síma 774-2730 eða í tölvupósti á katarzyna@trausti.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
69.900.000 kr.506 þ./m²
+239,3% á 15 árum
12. febrúar 2012Fyrsta sala
20.600.000 kr.149 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Engjasel 85

109 Reykjavík
69.900.000 kr.506 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1978TegundFjölbýlishúsStærð138,2 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF20553981Fasteignamat71.950.000 kr.Brunabótamat65.350.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 74 myndir

Upp ↑