fasteignasölur.is
Brekkugata 3b - 201
1 af 30

Um eignina

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955

Brekkugata 3b - 201

Skemmtileg 5 herbergja íbúð í miðbæ Akureyrar alveg við Ráðhústorgið. Eignin er á tveimur hæðum skráð 109,2 fm og stendur á eignarlóð.  

**Getur verið laus fljótlega**


Íbúðin skiptist í forstofu og stofurými á neðri hæð, eldhús, baðherbergi, fjögur svefnherbergi og þvottahús og geymslu. 

Forstofa er með steypt gólf og opið fatahengi.
Stofurými er aðeins upphækkað með minni lofthæð. 
Timburstigi milli hæða. 
Eldhús er rúmgott með ágætri innréttingu með stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél. Úr eldhúsi er útgengt út á timburverönd sem snýr í suðvestur. 
Þvottahús og geymsla er inn af eldhúsi, það er kalt rými. 
Baðherbergi er með upphengdu salerni, sturtuklefa og innréttingu undir vask. Opnanlegt fag er á baðinu. 
Svefnherbergi eru fjögur, þrjú þeirra eru svipuð að stærð með glugga til austurs. Yfir svefnherbergisgangi er svo rými sem nýtist sem mjög góð geymsla í herbergjunum. Herbergið við enda gangsins er stærra og með glugga til tveggja átta. 

Annað:
-Búið að endurbæta þak
-Gólfhiti á neðri hæð í forstofu og að stofurými
-Lögheimilisskráningu fylgir bílastæðakort fyrir einn bíl í miðbænum. 
-Vart við smá leka í stofurými á neðri hæð sem liggur upp að brekkunni til vesturs.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Brekkugata 3b - 201

600 Akureyri
45.900.000 kr.420 þ./m²
Hæð3 svefn · 1 bað
Byggingarár1931TegundHæðStærð109,2 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF21454116Fasteignamat44.150.000 kr.Brunabótamat49.000.000 kr.
Skráð hjá
Byggð
HeimilisfangSkipagötu 16, 600 AkureyriSími464-9955

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑