fasteignasölur.is
Freyjubrunnur í fjármögnunarferli 20
1 af 22

Um eignina

101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Falleg og vönduð 2ja herb. íbúð á 2.hæð í litlu fjölbýli. Sérstæði í bílageymslu í kjallara.

Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum skáp og flísum á gólfi. Þaðan er svo komið inn í alrými íbúðarinnar sem samanstendur af eldhúsi og stofu með útgengi út á stórar suður svalir með útsýni yfir Grafarholt og að Reynisvatnsási.  
Eldhús með fallegri viðar innréttingu með skápum og skúffum, flísar á milli skápa. 
Svefnherbergi er stórt, bjart og er með góðum fataskáp.
Baðherbergi flísalagt gólf og veggir. Baðinnrétting með skápum og handlaug á borði. Spegill með lýsingu fyrir ofan. Salerni, handklæðaofn og innangengt í rúmgóða sturtu. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara eru á baði ásamt góðum línskáp.

Gólfefni er parket nema í forstofu og á baði en þar eru flísar. 

Sameign snyrtileg.
Sér geymsla í kjallara.
Stæði í bílageymslu
Sameigninleg bílastæði á bak við húsið en þar eru tvö stæði með rafmagnshleðslu. 
Húsið málað að utan sumarið 2026.
Tengsl eru milli seljenda og 101 Reykjavík fasteignasölu
 
Allar upplýsingar veita: Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 kristin@101.is og Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 bjorgkristin@101.is 
Bókið skoðun á kristin@101.is eða í síma 820 8101

Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 89.900,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 


 

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · 101 Reykjavík
64.900.000 kr.898 þ./m²
+19,1% á 4 árum
5. október 2022Þinglýstur kaupsamningur
54.500.000 kr.754 þ./m²
+64,7% á 6 árum
21. október 2016Þinglýstur kaupsamningur
33.100.000 kr.458 þ./m²
+16,1% á 1 ári
27. janúar 2016Fyrsta sala
28.500.000 kr.394 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Freyjubrunnur í fjármögnunarferli 20

113 Reykjavík
64.900.000 kr.898 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2016TegundFjölbýlishúsStærð72,3 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF23544241Fasteignamat63.750.000 kr.Brunabótamat54.010.000 kr.
Skráð hjá
101 Reykjavík
HeimilisfangHáaleitisbraut 58-60, 108 ReykjavíkSími511-3101

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 22 myndir

Upp ↑