fasteignasölur.is
Langabrekka 18
1 af 116

Um eignina

Neðri sérhæð með sérinngangi, 3 svefnherbergjum og útgengi út á afgirtan sérafnotarétt við Löngubrekku 18, 200 Kópavogi. Skjólsælt og sólríkt sunnanmegin fyrir framan hús. Húsið er skráð 118 fm og einnig er óskráð stór sameiginleg geymsla. Eignin er vel staðsett og stutt í Fossvogsdalinn sem og Kópavogsdalinn. Garðurinn er veðursæll og virkilega notalegt að sitja fyrir framan húsið á sólríkum dögum. Frábært staðsetning, rólegt hverfi en samt stutt í helstu umferðaræðar. Stutt í leikskólann Fögrubrekku og bæði Snælandsskóla sem og Kóapvogsskóla. MK er einnig í göngufæri og stutt er í íþróttasvæðið Fagralund.

SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR EIGNINA

SMELLTU HÉR TIL AÐ SENDA INN TILBOÐ

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNAMYNDBAND

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA TEIKNINGAR

Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi, innaf forstofu er þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Frá forstofu er gengið inn í hol með harðparketi og fatahengi. Til vinstri frá holi er eldhús með U-laga innréttingu og eyju, góður borðkrókur við glugga, harðparket á gólfi. Innaf eldhúsi er rúmgott svefnherbergi með harðparketi á gólfi. Stofan er rúmgóð með harðparketi á gólfi, auðvelt að stúka af aukaherbergi í enda stofu og fá þannig 4ja svefnherbergið. Frá stofu er útgengt á afgirtan sérafnotarétt og þaðan út í sameiginlegan garð. Á gangi eru tvö svefnherbergi, bæði með harðparketi á gólfi, innaf hjónaherbergi er fataherbergi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar, innrétting og vifta. Íbúðin hefur afnot af mjög rúmgóðri geymslu (sem er í sameign en í dag er hún eingöngu nýtt af þessari íbúð, innaf geymslunni er gamall kyndiklefi með sameiginlegum lögnum fyrir báðar hæðirnar.

Mjög skemmtileg eign á frábærum stað í Kópavogi.

Að sögn fyrri seljanda hefur eftirfarandi verið endurnýjað:
 

2022: Skipt um glugga í eldhúsi og svefnherbergi innaf eldhúsi.
2020 nýr fataskápur í fataherbergi
2016: skipt um harðparkett, ofna og sólbekk í stofu
2015: Hiti lagður í gólf forstofu og þvottahús og flísalagt
2011: Baðherbergi endurnýjað af fagaðila 

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402

Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006 
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign. 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Húsaskjól
79.700.000 kr.675 þ./m²
+47,6% á 6 árum
26. febrúar 2021Fyrsta sala
54.000.000 kr.458 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Langabrekka 18

200 Kópavogur
79.700.000 kr.675 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1972TegundFjölbýlishúsStærð118 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2063706Fasteignamat76.100.000 kr.Brunabótamat56.200.000 kr.
Skráð hjá
Ásdís Ósk ValsdóttirLöggiltur fasteignasali863-0402 · asdis@husaskjol.is
Húsaskjól
HeimilisfangHlíðarsmári 2, 5. hæð, 201 KópavogurSími519-2600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 116 myndir

Upp ↑