fasteignasölur.is
Ánanaust 1 (Vesturvin 2) 605
Nýtt
1 af 10

Um eignina

Miklaborg kynnir: Vesturvin 2 er glæsileg bygging með metnaðarfullri hönnun á frábærum útsýnisstað í Vesturbæ Reykjavíkur. Húsið er staðsett örstutt frá verslun og þjónustu og í 10-15 mín. göngufæri frá miðbæ Reykjavíkur.

Pantið einkaskoðun: Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali sími: 8970634 eða throstur@miklaborg.is

Íbúð 605 er 4ra herbergja íbúð á 6. hæð með glæsilegu sjávarútsýni og yfir til Snæfellsness. Íbúðinni fylgir stæði í bílgeymslu. Sjónvarpsstofa er skilin af frá stofu með millivegg og í íbúðinni er stórt eldhús með eldunareyju. Frá stofu er útgengt á rúmlega 20 m2 svalir sem snúa í norðvestur sem eru með óviðjafnanlegu sjávarútsýni. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni og er hjónasvíta með sér baðherbergi þar sem er sturta og einngi tæplega 10 m2 fataherbergi. Frá hjónasvítu er útgengt á um 20m2 þaksvalir sem snúa í suðaustur og þar er hægt að koma fyrir heitum potti.  Annað baðherbergi er stutt frá anddyri með sturtu og einnig er sér þvottaherbergi í íbúðinni.  íbúðin er 164,1m² með 17 m²  geymslu sem er merkt nr. 46 og stæði í bílgeymslu merkt nr. B-06 Íbúðin er með hágæða ítölskum innréttingum frá Cassina en Sær er þema þessarar íbúðar sem betur má kynna sér á vefsíðu Vesturvin Vönduð tæki frá Miele og Siemens. Steinborðplötur og gólfsíðir gluggar. Allar íbúðir eru með gólfhita.

Nánar um verkefnið hér á heimasíðu þess HÉR.

Nánari upplýsingar veitir: Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is


Ánanaust 1 (Vesturvin 2) 605

101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð164,1 m²Herbergi4Svefnherb.2Baðherb.2
224.500.000 kr.1.368 þ./m²

▼ Lækkað 21. september 2026 um 20,5 m.kr. · var 245.000.000 kr.

Byggingarár2023InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2519597Fasteignamat123.850.000 kr.Brunabótamat113.720.000 kr.
Skráð hjá
Þröstur ÞórhallssonLöggiltur fasteignasali597-0634 · throstur@miklaborg.is
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 10 myndir

Upp ↑