fasteignasölur.is
Grásteinsmýri 2 - íbúð 207
1 af 47

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

Eignamiðlun auglýsir 2ja - 5 herbergja íbúðir í nýbyggingu við Grásteinsmýri, 225 Álftanesi. Um er að ræða 30 íbúðir, stærðir frá 63,2 fm - 144,8 fm. Allar íbúðir með bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi. Afhending íbúða er við kaupsamning.

Íbúð merkt 207 - 5 herbergja 144,8 fm íbúð á annari hæð með 3 - 4 svefnherbergjum og rúmgóðum sérafnotareit. Rúmgott svefnherbergi og þrjú minni barnaherbergi, baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Eldhús með stórri vinnueyju opið inn í borðstofu og stofu. Bílastæði í bílakjallara merkt B29. Virkilega vel skipulögð íbúð. Athugið að myndir af íbúðum eru tölvuteiknaðar og eiga ekki alltaf við allar íbúðir.

Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann löggiltur fasteignasali í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is


Smellið hér fyrir heimasíðu verkefnisins og skilalýsingu

Nánari lýsing:
Komið er inn forstofu með fataskápum.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtuklefa. Handlaug, handklæðaofn og upphengt salerni. Flísar á gólfum og veggjum. Annað baðherbergi inn af hjónaherbergi. Sér þvottahús inn af svefnherbergisgangi.
Eldhús: Eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi frá Axis. Ofn í vinnuhæð, góð vinnuaðstaða. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél frá.
Svefnherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi og baðherbergi. Barnaherbergi eru þrjú, tvö með skápum en eitt sem getur einnig nýst sem sjónvarpsherbergi.
Stofa/ borðstofa: Rúmgóð setustofa og borðstofa opið inn í eldhús. Gengið er út á sérafnotarétt út frá stofu, stór rennihurð.
Bílakjallari og geymsla: Bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni ásamt 8,3 fm geymslu.

Íbúðirnar verða afhentar án gólfefna, nema á votrýmum sem verða flísalögð. Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign) 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.

Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - gunnarbergmann@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Grásteinsmýri 2 - íbúð 207

225 Garðabær
126.000.000 kr.870 þ./m²
Fjölbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár2025TegundFjölbýlishúsStærð144,8 m²Herbergi5InngangurSérinngangurBílskúrLyftaFasteignanúmerF253468627Fasteignamat76.750.000 kr.
Skráð hjá
Eignamiðlun
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 47 myndir

Upp ↑