fasteignasölur.is
Davíðshagi 4 íbúð 101
1 af 21

Um eignina

Davíðshagi 4 íbúð 101 - Vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð í fjölbýli með lyftu og sér stæði í bílageymslu í Hagahverfi -  stærð 107,9 m²

Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús og stofu í opnu rými, baðherbergi með þvottaaðstöðu, tvö barnarherbergi og hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi inn af. 
Sér geymsla er í kjallara, skráð 7,3 m² að stærð.
Steypt suður verönd með svalalokunarkerfi, 9,7 m². 


Forstofa og gangur eru með vínyl parketi á gólfi og þar er tvöfaldur skápur og skóskápur.
Eldhús, vönduð tvílit plastlögð innrétting með góðu bekkjar og skápaplássi. Uppþvottavél er innfelld í innréttingu og fylgir með við sölu. Borðstofa er með skemmtilegum glugga til austurs.
Stofa og eldhús eru í opnu rými, með vínyl parketi á gólfi og gluggum til tveggja átta. Úr stofu er gengið út á steypta verönd með svalalokunarkerfi. Rafmagnshitari fylgir með við sölu.
Svefnherbergin eru þrjú, tvö barnaherbergi með vínyl parketi á gólfi og tvöföldum fataskápum og svo hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi inn af. Vínyl parket á gólfi og vandaðar innréttingar. Á baðherberginu er upphengt wc, innrétting og sturta. 
Aðal baðherbergið er með vínyl parketi á gólfi, vandaðari plastlagðri tvílitri innréttingu, upphengdu wc, sturtu og opnanlegum glugga. Flísar eru á gólfi í sturtu og veggjum aðrir veggir eru málaðir. Stæði eru í innréttingunni fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. 
Sér geymsla er í kjallaranum, skráð 7,3 m² að stærð, þar er lakkað gólf og hillur.
Sér stæði í bílakjallara fylgir íbúðinni.

Annað

- Loft alrýma og svefnherbergja íbúða eru klædd hljóðdempuðum loftaplötum. Önnur loft íbúða eru máluð.
- Loftskiptikerfi er í íbúðinni.
- Mynddyrasími. 
- Eignin er í einkasölu

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Davíðshagi 4 íbúð 101

600 Akureyri
81.900.000 kr.759 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár2018TegundFjölbýlishúsStærð107,9 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF250082411Fasteignamat72.750.000 kr.Brunabótamat63.610.000 kr.
Skráð hjá
Hvammur Fasteignasala
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑