Um eignina
PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.
Perla Investments kynnir: Einbýlishús í San Miguel
Fallegt einbýlishús á tveimur hæðum auk kjallara í rólegu úthverfi í San Miguel. Í húsinu eru 3 rúmgóð svefnherbergi með innbyggðum fataskápum og 3 baðherbergi með gólfhita, einnig fylgir mjög rúmgóður kjallari þar sem hægt væri að útbúa tómstundaherbergi, líkamsrækt, heima bíó eða jafnvel vínkjallara. Mjög stór garður fylgir einnig, en í honum er að finna sundlaug, stóra verönd og sér bílastæði inn á lóð, einnig fylgja glæsilegar þaksvalir með frábæru útsýni yfir nærliggjandi umhverfi. Húsið afhendist með gæða heimilistækjum og loftkælingu. Hér ertu nálægt allri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í veitingastaði, súpermarkaði, almenningssamgöngur o.fl. Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdri heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman. Hafirðu áhuga á að spila golf, þá ertu komin á rétta staðinn, en innan við 8 km radíus er að finna fjóra 18 holu golfvelli, s.s. Villamartin golfvöllinn, Campoamor Real Golf Klúbbinn, Las Ramblas golfvöllinn og Las Colinas völlinn. Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans. Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!
Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á https://perlainvest.com/eign/7351/einbylishus-i-san-miguel/
Ref: NB-43449
Fylgdu okkur á Facebook - www.facebook.com/Perlainvest
Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com . Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.
Bjóðum einnig uppá á leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/
Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu. Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda
Perla Inv. - Einbýlishús í San Miguel
Allar 12 myndir
Upp ↑










