fasteignasölur.is
Vetrarbraut 2-4 íb112
Opið hús í dag kl. 17:30–18:00
1 af 13

Um eignina

NÆG BÍLASTÆÐI í bílakjallara!! Fasteignasalan TORG kynnir: Góð 3ja herbergja íbúð með sérafnotareit, um 8,2fm sem snýr inn í sameiginlegan garð og svalir ásamt bílastæði í bílakjallara!! Íbúð merkt: 112, sem skilast fullbúin án gólfefna. Íbúðin er alls 125,9fm að stærð á 1. hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin sjálf er skráð 106 fm og skiptist í anddyri, gestasalerni, alrými með eldhúsi og stofu með útgengi út á svalir, 2 svefnherbergi, gott baðherbergi, sér þvottaherbergi, frístundarskúr í sameign merkt: 0-102, skráð 19,9fm. ásamt einu bílstæði í bílakjallara merkt: N23. Allar nánari upplýsingar, teikningar, og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Guðný Ösp, fasteignasali í GSM: 665-8909 eða gudny@fstorg.is 

Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉR
Sækja söluyfirlit HÉR

Vetrarbrautin er hluti af nýju hverfi við jaðar friðlandsins í Heiðmörk.
Húsin eru í randbyggðarformi með fallegum inngarði. Íbúðir á jarðhæð hafa sérafnotareiti en íbúðir á efri hæðum eru með svalir. Einstök staðsetning við golfvöll GKG við Vífilstaði þar sem hægt er að bruna á golfbílnum beint úr frístundaskúrnum út á völl. Fallegar eignir þar sem áhersla er lögð á loftgæði og hefur hver íbúð sitt eigið loftskiptakerfi.
Við hönnun innanhúss var horft til þess að halda innréttingum þannig að þær séu klassískar og tímalausar en jafnframt nútímalegar. Vandað var við val á eldhús- og blöndunartækjum.
Næg bílastæði eru í bílakjallara og hverri íbúð fylgja 1 til 3 einkastæði. Þá fylgir hluta íbúðanna frístundaskúr eða bílskúr í bílakjallara.
Tvö fjögurra hæða staðsteypt fjölbýlishús með inngarð. Samtals 72 íbúðir í 6 stigagöngum Tveggja hæða niðurgrafinn bílakjallari með geymslum, bílskúrum.  Samtals 115 bílastæði á lóð og í bílakjallara. Húsin eru í svansvottunarferli.

Utanhússfrágangur
Klæðning: Flísar og álklæðning (báru og slétt), náttúrulegir jarðlitir.
Þak: Þakplötur eru steinsteyptar og vatnshalli formaður í steypu. Viðsnúið með gróðurþekju, þykk einangrun og drenlag.
Gluggar og hurðir: Ál/tré gluggar og hurðir, hvítir að innan og koxgráir að utan.
Lóð: Fullfrágengin skv. landslagsuppdráttum, snjóbræðsla á gönguleiðum, rafhleðslurör í jörð, 2 hleðslustöðvar á lóð.

Innanhússfrágangur 
Gólfefni: Baðherbergi og þvottahús flísalögð, annars afhent án gólfefna.
Loft: Spörtluð og máluð; dúkloft í sumum þvottahúsum.
Veggir: Léttir innveggir með steinull, rakavörn í votrýmum, allir veggir sandspartlaðir og málaðir.
Hurðir: Yfirfelldar, hvítar hurðir frá Parka.
Innréttingar: Frá VOKE-III, plastlagðar með kvarssteins borðplötum, svört handföng. Flísar: 60x60 
Hitakerfi: Hefðbundið ofnakerfi, gólfhiti og handklæðaofnar á baðherbergjum.
Loftskipti: Sér samstæða fyrir hverja íbúð.
Raflagnir: Ljósleiðari, myndavéladyrasími, hvítir rofar og tenglar.

Tæki og búnaður
Eldhústæki (flest frá Siemens): Helluborð, ofn, ísskápur, uppþvottavél.
Háfar: Falmec Sophie hangandi eða Bosch innbyggðir.

Sameignir: Stigagangar: Málaðir veggir, teppalögð gólf, flísar í anddyri, burstuð stállyfta.
Geymslur: Slípaðir og málaðir veggir/gólf með slitþolinni málningu.
Hjólageymsla: Í hvoru húsi.
Djúpgámar: 6 talsins, rusl flokkað skv. reglum Garðabæjar.

Hönnun og framkvæmdir
Arkitektar: Arkís arkitektar.
Verkfræðihönnun: Þráinn & Benedikt, LX teiknistofa.
Framkvæmdaraðili: Framkvæmdarfélagið Arnarhvoll.
Sjá nánar skilalýsingu verkefnisins

Vetrarbraut 2-4 íb112

210 Garðabær
114.900.000 kr.913 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
Byggingarár2025TegundFjölbýlishúsStærð125,9 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF253485426Fasteignamat100.750.000 kr.Brunabótamat82.550.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan TORG
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 13 myndir

Upp ↑