fasteignasölur.is
Vetrarbraut 2-4 íb205
Opið hús í dag kl. 17:30–18:00
1 af 18

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir: Góð 2ja herbergja íbúð með svalir inn í sameiginlegan garð og bílastæði í bílakjallara. Íbúð merkt:0205, sem skilast fullbúin án gólfefna. Íbúðin er alls 77,7fm að stærð á 2. hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin sjálf er skráð 66,9fm og skiptist í anddyri, alrými með eldhúsi og stofu með útgengi út á svalir, 1 svefnherbergi með fataherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sér geymslu í sameign merkt: 0010, skráð 10,8fm. ásamt bílstæði í bílakjallara merkt: B53.   Allar nánari upplýsingar, teikningar, og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Helgi Jónsson, fasteignasali í GSM: 780-27000 eða helgi@fstorg.is 

Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉR
Sækja söluyfirlit HÉR

Almennar upplýsingar 
Vetrarbraut 2 - 4 er nýtt fjölbýlishús í nýju og heillandi hverfi sem rís miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu í nánd við Vífilsstaði, golfvöll GKG,
Heiðmörk og nýja íþróttaaðstöðu í Miðgarði, Garðabæ. Íbúðirnar eru einstaklega vel hannaðar, í svansvottunarferli, með gæði og þægindi í fyrirrúmi. Innréttingar eru vandaðar og allt efnisval smekklegt og tímalaust. Í hverri íbúð er loftskiptikerfi sem eykur loftgæði, stuðlar að heilnæmu innilofti og bætir líðan íbúa. Í bílakjallara fylgir öllum íbúðum eitt til tvö bílastæði og sumum þeirra fylgir einnig frístundaskúr eða bílskúr. Hverfið nýtur sterkra innviða Garðabæjar auk þess sem stutt er í marga af stærstu verslunarkjörnum höfuðborgarsvæðisins og fjölbreytta þjónustu. Góðar tengingar eru við stofnbrautir. Skipulag svæðisins hefur hlotið alþjóðlegu umhverfisvottunina BREEAM.
Tvö fjögurra hæða staðsteypt fjölbýlishús með inngarð. Samtals 72 íbúðir í 6 stigagöngum Tveggja hæða niðurgrafinn bílakjallari með geymslum, bílskúrum.  Samtals 115 bílastæði á lóð og í bílakjallara. Húsin eru í svansvottunarferli. Sjá nánar skilalýsingu*

Utanhússfrágangur
Klæðning: Flísar og álklæðning (báru og slétt), náttúrulegir jarðlitir.
Þak: Þakplötur eru steinsteyptar og vatnshalli formaður í steypu. Viðsnúið með gróðurþekju, þykk einangrun og drenlag.
Gluggar og hurðir: Ál/tré gluggar og hurðir, hvítir að innan og koxgráir að utan.
Lóð: Fullfrágengin skv. landslagsuppdráttum, snjóbræðsla á gönguleiðum, rafhleðslurör í jörð, 2 hleðslustöðvar á lóð.

Innanhússfrágangur 
Gólfefni: Baðherbergi og þvottahús flísalögð, annars afhent án gólfefna.
Loft: Spörtluð og máluð; dúkloft í sumum þvottahúsum.
Veggir: Léttir innveggir með steinull, rakavörn í votrýmum, allir veggir sandspartlaðir og málaðir.
Hurðir: Yfirfelldar, hvítar hurðir frá Parka.
Innréttingar: Frá VOKE-III, plastlagðar með kvarssteins borðplötum, svört handföng. Flísar: 60x60 
Hitakerfi: Hefðbundið ofnakerfi, gólfhiti og handklæðaofnar á baðherbergjum.
Loftskipti: Sér samstæða fyrir hverja íbúð.
Raflagnir: Ljósleiðari, myndavéladyrasími, hvítir rofar og tenglar.

Tæki og búnaður
Eldhústæki (flest frá Siemens):
Helluborð, ofn, ísskápur, uppþvottavél.
Háfar: Falmec Sophie hangandi eða Bosch innbyggðir.

Sameignir:
Stigagangar: Málaðir veggir, teppalögð gólf, flísar í anddyri, burstuð stállyfta.
Geymslur: Slípaðir og málaðir veggir/gólf með slitþolinni málningu.
Hjólageymsla: Í hvoru húsi.
Djúpgámar: 6 talsins, rusl flokkað skv. reglum Garðabæjar.

Hönnun og framkvæmdir
Arkitektar: Arkís arkitektar.
Verkfræðihönnun: Þráinn & Benedikt, LX teiknistofa.
Framkvæmdaraðili: Framkvæmdarfélagið Arnarhvoll.
Sjá nánar skilalýsingu*
 

Vetrarbraut 2-4 íb205

210 Garðabær
77.900.000 kr.1.003 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2025TegundFjölbýlishúsStærð77,7 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF253486726Fasteignamat72.850.000 kr.Brunabótamat57.650.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan TORG
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 18 myndir

Upp ↑