fasteignasölur.is
Djúpahraun 9
1 af 51

Um eignina

Borg fasteignasala kynnir til sölu fallegt sumarhús ásamt gestahúsi við Djúpahraun í Grímsnesinu.  Aðalhúsið skiptist í forstofuhol með flísum og búr inn af, Baðherbergi með parketi og innréttingu, sturtuklefa. Svefnherbergi er flísalagt með fallegum viðarborðum á veggjum. Stofa og eldhús mynda bjart alrými miklum gluggum og útgangi út á verönd. Eldhús er með hvítlakkaðri innréttingu og eyjum með steinborðplötu. Hiti er í gólfum.
Gestahús er parketlagt með viðarklæðningu í lofti. Baðherbergi er flísalagt með innréttingu og sturtuklefa. 
Undir gestahúsi er rúmgóð geymsla.  í kringum húsið er stór timburlagður pallur með gróðurhúsi og heitum potti. Lóðin er gróinn með grasflöt og miklum trjágróðri sem eigendur hafa gróðursett á undaförnum árum. 
Húsið skiptist eftirfarandi samkvæmt fasteignaskrá sumarhús 103,9 fermetrar, gestahús 29,6 og geymsla 29,6, samtals 163,1 fermetra. Húsið stendur á 8500 fermetra eignarlóð og er hitavita á svæðinu.

Nánari upplýsingar veitir Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali-löggiltur leigumiðlari  í síma 897-1401 brandur@fastborg.is  hjá BORG fasteignasölu.


Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði




 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Borg Fasteignasala
Tilboð
22. mars 2019Fyrsta sala
47.400.000 kr.291 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Djúpahraun 9

805 Selfoss (dreifbýli)
Tilboð
Sumarhús2 svefn · 2 bað
Byggingarár2008TegundSumarhúsStærð163,1 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF23110641Fasteignamat68.450.000 kr.Brunabótamat80.050.000 kr.
Skráð hjá
Borg Fasteignasala
HeimilisfangSíðumúli 23, 108 ReykjavíkSími519-5500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 51 myndir

Upp ↑