fasteignasölur.is
Norðlingabraut 10
1 af 5

Um eignina

Borg fasteignasala ehf. og Gunnlaugur Þráinsson, löggiltur fasteigasali kynna til sölu atvinnulóðina Norðlendingabraut 10, 110 Reykjavík, F2328635 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Norðlingabraut 10 er skráð sem hér segir hjá HMS, F232-8635, birt stærð lóðar er 7.995 fermetrar. Landeignanúmer: L204839

Lóðin er viðskipta og þjónustu lóð og stendur við Suðurlandsveg á milli WURTH, Norðlingabraut 8 og fimleikahúss Fylkis, Norðlingabraut 12.
Skipulag lóðar er að það hús sem byggt er á lóðinni stendur fremst í lóðinni við Norðlingabraut er með óheftu útsýni til norðurs. Athafnasvæði, aðkoma og bílastæði eru baka til, til móts við íbúðargötuna Ferjuvað 1-3. Tenging við stofnbrautir er góð.
Með breytingum á Arnarnesvegi og Breiðholtsbraut sem ljúka nú í haust, munu suðurbyggðir höfuðbogarsvæðisins tengjast betur við Suðurlandsveg. 
Það hús sem verður byggt á lóðinni mun hafa mikið auglýsingagildi, enda mikil umferð á Suðurlandsvegi. 
 
Helstu upplýsingar
Stærð lóðar er 7.995 fermetrar
Leyfilegt byggingarmagn er 5.500 fermetrar
Samkvæmt málakerfi Byggingarfulltrúa þá er búið að greiða gatnagerðar- og byggingarréttargjöld fyrir allt að 5.500 fermetra atvinnuhúsnæði á lóðinni Norðlingabraut 10 
Drög að teikningum að húsi á lóðinni, geta fylgt með.
Fjárfestingartækifæri, atvinnulóð vel staðsett við Suðurlandsveg.
 
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnlaugur Þráinsson, löggiltur fasteignasali
sími 8446447, netfang: gunnlaugur@fastborg.is.

 
 
 

Norðlingabraut 10

110 Reykjavík
Tilboð
Jörð/Lóð
TegundJörð/LóðStærð0 m²FasteignanúmerF23286351Fasteignamat83.150.000 kr.
Skráð hjá
Borg Fasteignasala
HeimilisfangSíðumúli 23, 108 ReykjavíkSími519-5500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 5 myndir

Upp ↑