fasteignasölur.is
Miklabraut 68
1 af 14

Um eignina

Fasteignasalan Garður 

Eignin er seld - Hafðu samband ef þú ert í söluhugleiðingum. baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000.

Baldur fasteignasali - Sími 450-0000
kynnir: í einkasölu bjarta og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð með sérinngangi og aukinni lofthæð við Miklubraut 68, 105 Reykjavík, á eftirsóttum stað í Hlíðunum. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin 70,1 fermetrar, þar af er geymsla 7,3 fermetrar.

Um er að ræða fallega eign sem snýr öll til suðurs að grónum bakgarði hússins. Íbúðin skiptist í anddyri/gang, alrými með eldhúsi og stofu, rúmgott svefnherbergi, baðherbergi og garðskála með útgengi út í garð.

Smelltu hér til að sækja kynningarbækling með öllum helstu upplýsingum.

Nánari lýsing:
Anddyri / gangur: Harðparket á gólfi og tvöfaldur fataskápur. Inngangur frá sameign en einnig er hægt að nota útgengi frá garði sem sérinngang. 
Eldhús: Rúmgóð Ikea eldhúsinnrétting með góðu skápa- og vinnuplássi. Keramik vaskur, Gorenje helluborð og bakaraofn í vinnuhæð. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Stofa / alrými: Bjart og opið rými með góðri tengingu milli stofu, borðstofu og eldhúss. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi: Mjög rúmgott herbergi með tvöföldum fataskáp. Rennihurð er á milli herbergis og alrýmis.
Garðskáli: Gengið er úr svefnherbergi í garðskála með flísum á gólfi og þaðan út í bakgarð. Hægt er að nota þann inngang sem aðalinngang í íbúðarinnar.
Baðherbergi (endurnýjað 2022): Flísalagt í hólf og gólf. Vegghengt salerni, innrétting við vask með speglaskáp og sturta.

Annað: 
- Sérgeymsla í sameign
- Sameiginlegt þvottahús
- Gróinn bakgarður með hellulagðri stétt
- Dýrahald heimilt
- Íbúðin snýr öll í suður að garði

Staðsetning:
Frábær staðsetning í Hlíðunum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, skóla og útivistarsvæði. Öskjuhlíð, miðbær Reykjavíkur og Háskólasvæðið eru í stuttu göngufæri.

Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – 
löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000

Skoða meðmæli  -  Verðmat fasteigna  -  Lúxus fasteignir  -  Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Verðsaga

4 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Garður
52.900.000 kr.755 þ./m²
+17,6% á 4 árum
23. febrúar 2023Þinglýstur kaupsamningur
45.000.000 kr.642 þ./m²
+112,3% á 8 árum
10. september 2014Þinglýstur kaupsamningur
21.200.000 kr.393 þ./m²
+21,1% á 2 árum
14. nóvember 2012Þinglýstur kaupsamningur
17.500.000 kr.325 þ./m²
+37,8% á 6 árum
15. desember 2006Fyrsta sala
12.700.000 kr.236 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Miklabraut 68

105 Reykjavík
52.900.000 kr.755 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1948TegundFjölbýlishúsStærð70,1 m²Herbergi2InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2030553Fasteignamat51.900.000 kr.Brunabótamat35.750.000 kr.
Skráð hjá
Garður
HeimilisfangBæjarhraun 12, 220 HafnarfjörðurSími562-1200

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 14 myndir

Upp ↑