fasteignasölur.is
Vatnsendahlíð 65
1 af 50

Um eignina

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** 

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt sumarhús ásamt gestahúsi og tveimur geymsluskúrum á 2.634 m2 leigulóð við Vatnsendahlíð 65 við Skorradalsvatn í Borgarfirði. Mikill trjágróður er á lóðinn og stór timburverönd. Eignin er skráð 53,0 m2 sumarbústaður. samkvæmt skráningartöflu á er gestahús skráð 13,8 m2 og geymsla skráð 6,0 m2 eða samtals 72,8 m2.

Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu rými, 3 svefnherbergi, baðherbergi, gestahús með svefnherbergi og baðherbergi og tvo geymsluskúra. 

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent


Nánari lýsing:
Rafmagnsgólfhiti er í húsinu.
Forstofa er með parket á gólfi og fatahengi.
Baðherbergi er með dúkflísum á gólfi, Fibo-baðplötum á veggjum, innréttingu, vegghengdu salerni og sturtu. Gluggi er að baðherbergi. Varmaskiptir er fyrir neysluvatn á baðherbergi.
Svefnherbergi nr. 1 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með kojum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Eldhús og stofa eru í opnu björtu rými með parketi á gólfi. Falleg kamína er í rýminu. Í eldhúsi er L-laga eldhúsinnrétting. Úr eldhúsi og úr stofu er gengið út á timburverönd. 

Gestahús:
Svefnherbergi með parketi á gólfi
Baðherbergi með handlaug, salerni og sturtu. Gluggi er á baðherbergi. Engöngu er kalt vatn á baðherbergi en varnaskiptir er á baðherbergi ótengdur.

Geymsluskúr nr. 1: 
Er á timburverönd með rafmagni.
Geymsluskúr nr. 2
Er með innkeyrsluhurð, inngangshurð og malargólfi.

Skorradalur, er umvafin fjöllum, skógi og vatni, og býður upp á einstaklega fallegt útsýni. Þá er staðurinn þekktur fyrir mikla veðursæld og fegurð. Um klukkutíma akstur er frá Reykjavík. Góð aðkoma frá Skorradalsvegi og stutt í Borgarnes þar sem öll helsta þjónusta er aðgengileg. Stutt er í náttúruperlur, og sund, golf, Hraunfossa, Krauma, Reykholt og Húsafell. Einnig má nefna veiði, göngu, hjólreiðar og annað sumarsport.

Rekstrarkostnaður 2026, á ársgrundvelli:
Fasteignagjöld = 000.000 kr.
Lóðarleiga = 213.437 kr
Brunatrygging = 52.000 kr.
Sumarhúsafélag = 23.500 kr.

Verð kr. 44.900.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Vatnsendahlíð 65

311 Borgarnes (dreifbýli)
44.900.000 kr.617 þ./m²
Sumarhús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1989TegundSumarhúsStærð72,8 m²Herbergi5InngangurSérinngangurFasteignanúmerF21069691Fasteignamat31.650.000 kr.Brunabótamat32.000.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasala Mosfellsbæjar
HeimilisfangKjarni - Þverholti 2, 270Sími586-8080

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 50 myndir

Upp ↑