fasteignasölur.is
Dvergshöfði 4
1 af 10

Um eignina

Ergon kynnir til LEIGU ný hágæða skrifstofubygging að Dvergshöfði 4, 110 Reykjavík.

Til leigu nýja og stórglæsilega skrifstofubyggingu við Dvergshöfða 4 sem nú er í byggingu. Byggingin er vel staðsett og býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir fyrirtæki sem vilja nýta sér sterka staðsetningu til framtíðar í hverfi sem er í hraðri uppbyggingu. Gert er ráð fyrir afhendingu á næstu 18-24 mánuðum.
Helstu kostir: Frábær staðsetning í nýjum kjarna, Borgarhöfða. Fjöldi bílastæða ofan- og neðanjarðar. Mikil þjónusta í nánasta umhverfi. Nútíma vinnuumhverfi sem býður upp á mikil gæði, góða dagsbirtu, hljóðvist og loftgæði.
Stærð: Um 10.500 m² umhverfisvottað hús á 7 hæðum. Hver hæð 900-1600 m². 
Skipulag: Hlýleg og nútímaleg hönnun. Ekki er komin endanleg hönnun á innra skipulag og því möguleiki á þátttöku leigutaka í hönnun.
Aðstaða: Áhersla lögð á sjálfbærni og snjalllausnir.
Aðgengi: Fjöldi bílastæða ofan- og neðanjarðar. Fyrsti áfangi Borgarlínunnar í innan við 5 mínútna göngufjarlægð.
Umhverfi: Mikil þjónusta á svæðinu m.a mathöll og heilsugæsla, sem mun aukast enn frekar á næstu árum. Stutt í almenningssamgöngur og stofnbrautir.
Þessi rými eru tilvalin fyrir fyrirtæki í mismunandi atvinnugreinum sem þurfa gott vinnuumhverfi. Staðsetningin tryggir gott aðgengi og mikinn sýnileika á frábærum stað. 



Nánari upplýsingar veitir:
Davíð Ólafsson, lfs og löggiltur leigumiðlari,
sími: 7666633,
tölvupóstur: david@ergon.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í húsaleigulögum nr. 36/1994 er kveðið á um heimild aðila kalla til skoðunaraðila til úttektar á húsnæðinu fyrir afhendingu. Ergon bendir væntanlegum leigjendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Í tilfelli atvinnuhúsnæðis er ríkari heimild aðila að semja sig frá lögum og gildir þá ákvæði leigusamnings ef til ágreinnings kemur. 

Dvergshöfði 4

110 Reykjavík
Tilboð
Atvinnuhúsnæði
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð1047,2 m²BílskúrFasteignanúmerF23071917
Skráð hjá
GASTAD ehf
HeimilisfangLitlakrika 76, 270 MosfellsbærSími766-6633

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 10 myndir

Upp ↑