fasteignasölur.is
Silfursmári 12
1 af 4

Um eignina

Ergon kynnir til LEIGU eignina Silfursmári 12, 201 Kópavogur.
Eignin er 459.2fm að stærð.

Lýsing:
Nýtt hágæða skrifstofu-, verslunar- eða þjónusturými á frábærum stað í Silfursmára 12 við hlið Smáralindar í miðju höfðuborgarsvæðisins.
Helstu kostir.
Mikil þjónusta í nánasta umhverfi. Nútíma vinnuumhverfi sem býður uppá mikil gæði, góða dagsbirtu, hljóðvist og loftgæði.
Stærð:
Húsið er í heild um 2.400 m² að viðbættum bílakjallara, geymslum og búningsaðstöðu. Nú eru lausir 459,2fm og möguleiki er á sérsniði og sveigjanleika eftir þörfum leigutaka.

Skipulag og umhverfi.
Silfursmári 12 er á fjórum hæðum og er möguleiki á að vera með verslun og þjónustu á jarðhæð.
Silfursmári 12 verður Svansvottuð bygging og tekur öll hönnun mið af því. Sambland af timbri, stáli og steypu sem gefur hlýlegt yfirbragð.
Bílastæði ofan- og neðanjarðar ásamt fjölda bílastæða við Smáralind.
Mikil þjónusta er í nærumhverfi og má þar nefna t.d Smáralind og heilsugæslu í 100 metra fjarlægð. Í Smáralind eru samankomnir um 100 rekstraraðilar sem bjóða upp á margvíslega verslun, þjónustu, veitingar og afþreyingu fyrir fólk á öllum aldri. Nýtt veitingasvæði mun opna þar fyrir lok árs 2025.
Tilvalinn kostur fyrir fyrirtæki í mismunandi atvinnugreinum sem þurfa gott vinnuumhverfi. Staðsetningin tryggir mjög gott aðgengi og einstakan sýnileika.

Nánari upplýsingar veitir:
Davíð Ólafsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari
sími: 7666633
tölvupóstur: david@ergon.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í húsaleigulögum nr. 36/1994 er kveðið á um heimild aðila kalla til skoðunaraðila til úttektar á húsnæðinu fyrir afhendingu. Ergon bendir væntanlegum leigjendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Í tilfelli atvinnuhúsnæðis er ríkari heimild aðila að semja sig frá lögum og gildir þá ákvæði leigusamnings ef til ágreinnings kemur. 

Silfursmári 12

201 Kópavogur
Tilboð
Atvinnuhúsnæði
Byggingarár2025TegundAtvinnuhúsnæðiStærð459,2 m²Herbergi22FasteignanúmerF23687533
Skráð hjá
GASTAD ehf
HeimilisfangLitlakrika 76, 270 MosfellsbærSími766-6633

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 4 myndir

Upp ↑