fasteignasölur.is
Andarhvarf 7C
1 af 94

Um eignina

Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Mjög vel skipulögð og björt 4ra herbergja íbúð með tveimur baðherbergjum í góðu fjórbýlishúsi með sérinngangi, mikilli lofthæð, glæsilegu útsýni og einstaklega góðu útisvæði bæði að framan og aftan við húsið. Stórar svalir eru út frá stofu í útsýnis átt og á bak við húsið er stór og sólríkur pallur sem snýr að náttúrunni. Stór bílskúr er á jarðhæð hússins sem fylgir íbúðinni. Íbúðin er aðeins eina hæð upp frá bílaplaninu sem liggur að bílskúrnum. 
Eignin hefur verið fallega endurnýjuð með vönduðu efnisvali. Tvö nýuppgerð baðherbergi með tækjum frá Hansgrohe og innréttingu frá Ísleifi Jónssyni, nýlegt harðparketi frá Birgisson á allri eigninni og flísum frá Flísabúðinni.

Allar frekari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is

Helstu atriði:

-Þrjú stór svefnherbergi
-Tvö baðherbergi
-Mikil lofthæð
-Svalir og verönd
-Bílskúr
-Sér bílastæði
-Sér þvottahús
-Útsýni

Nánari lýsing eignar: Komið er að húsinu á jarðhæð þar sem bílastæði eru næg og aðgengi að bílskúrum sem fylgja öllum íbúðum hússins. Gengið er upp eina hæð um steyptar utan á liggjandi tröppur að íbúðinni. 
Forstofa: Björt og falleg forstofa með nýlegum flísum frá Flísabúðinni, gólfhita og góðum skápum upp í loft.
Baðherbergi 1: Nýuppgert flísalagt baðherbergi með gólfhita, vönduðum baðtækjum og innréttingu frá Ísleifi Jónssyni, fallegri handlaug ásamt sturtu með glerskilrúmi. Opnanlegur gluggi.
Stofa og borðstofa: Bjartar og rúmgóðar með mikilli lofthæð, stórum gluggum og glæsilegu útsýni. Útgengi á 21 fm svalir með nýjum timburpalli á gólffleti.
Eldhús: Stór hvít háglans innrétting er í vinkil með efri og neðri skápum. Mikið skápapláss og gott vinnuborð er í innréttingunni. Borðkrókur er við glugga. 
Baðherbergi 2: Stórt og nýuppgert flísalagt baðherbergi með gólfhita, innréttingu frá Parka ásamt rúmgóðri sturtu með glerskilrúmi og baðtækjum frá Ísleifi Jónssyni.
Hjónaherbergi 3: Parketlagt með miklu skápaplássi.  (16,2 m2).
Svefnherbergi 2: Parketlagt með skápum (11,9 m2).
Svefnherbergi 1: Parketlagt með skápum, útgengi út á stóra timbur verönd sem liggur við bakhlið hússins.  Herbergið er 11.6m2. 
Þvottahús: Flísalagt sér þvottahús með innréttingum og skápum.
Verönd: 58 fm sér timburverönd með skjólveggjum ásamt rúmgóðri útigeymslu.
Bílskúr og bílastæði: 38 fm bílskúr og geymsla ásamt sér bílastæði (innaf bílskúr er geymsla sem ekki er stúkuð af 9,2fm).

Allar upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
134.900.000 kr.721 þ./m²
+366,8% á 15 árum
29. júlí 2011Þinglýstur kaupsamningur
28.900.000 kr.154 þ./m²
+25,1% á 1 ári
21. júlí 2011Fyrsta sala
23.100.000 kr.123 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Andarhvarf 7C

203 Kópavogur
134.900.000 kr.721 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár2011TegundFjölbýlishúsStærð187,2 m²Herbergi4InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF22922471Fasteignamat115.400.000 kr.Brunabótamat96.700.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 94 myndir

Upp ↑