fasteignasölur.is
Brúarfljót 3
1 af 8

Um eignina

Lind fasteignasala kynnir í sölu vandað og nýlegt 122,4 fermetra atvinnuhúsnæði með góðu athafnasvæði að Brúarfljóti 3A, 270 Mosfellsbæ. Möguleiki er að koma fyrir góðu millilofti yfir hluta húsnæðis. Stórar innkeyrslu- og inngangshurðar báðum megin inn í húsið sem eykur nýtingu húsnæðis til muna.

Nánari upp. Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali 849-0672 / heimir@fastlind.is


Nánari lýsing:
Bil merkt 01 0107: Birt stærð er 122,4 fm. með tveimur innkeyrsluhurðum og tveimur inngangshurðum. Baðherbergi og ræstivaskur.

BRÚARFLJÓT 3 er atvinnuhúsnæði sem samanstendur af tveimur húsum með byggingarár 2023.
Hús merkt 01 (sem er Brúarflöt 3A) samanstendur af 18 eignarhlutum, frá 50 fm. – 123 fm.

Húsin eru á einni hæð, límtréshús frá LímtréVírnet ehf., klætt steinullar samlokueiningum.

Stærð lóðar: 6397,0 fm. iðnaðar og athafnalóð.

Almennt:
Húsin eru límtréshús frá LímtréVírnet ehf., klætt steinullar-yleiningum.
Innkeyrsluhurð er um 3,5 m. á hæð og um 4,0 m. á breidd. Lofthæð lægst 4,0 m. og hæst rúmir 6 m.
Bílaplan er malbikað.
Húsin er byggð á steinsteyptum undirstoðum. Gólf eru steypt og vélslípuð. Burðarvirki veggja og þaks er límtré. 
Hurðir og gluggar eru úr hvítu PVC.
Hvert bil afhendist með baðherbergi og ræstivaski.

Aðgengi og lóð: 
Við húsið eru 70 malbikuð bílastæði með vatnshalla og niðurföllum. Hvert bil hefur því gott sameiginlegt útisvæði.

Mjög góð staðsetning í Mosfellsbæ í ört vaxandi hverfi.
 

Brúarfljót 3

270 Mosfellsbær
63.500.000 kr.519 þ./m²
Atvinnuhúsnæði1 bað
Byggingarár2024TegundAtvinnuhúsnæðiStærð122,4 m²InngangurTveir inngangarFasteignanúmerF25306674Fasteignamat47.350.000 kr.Brunabótamat44.500.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 8 myndir

Upp ↑