Um eignina
Sjá hér myndband af eigninni
Nánari lýsing:
Anddyri: Rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Hol: Parket á gólfi.
Stofa: Parket á gólfi, fallegt útsýni, útgengt úr alrými út á svalir (sól seinnipart dags). Hægt að taka niður léttan vegg sem stúkar af herbergi innaf stofu.
Eldhús: Með fallegri innréttingu, fínt borðpláss, innbyggð uppþvottavél.
Svefnherbergi:Tvö parketlögð svefnherbergi, stór fataskápur í hjónaherbergi.
Baðherbergi: Flísalagt með góðri innréttingu, stór flísalögð sturta, falleg lýsing. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi er á rýminu.
Geymslur: Eigninni fylgja tvær geymslur, önnur með aðgengi úr anddyri og hin á neðri hæð hæð hússins.
Húsið: Byggt 2023, staðsteypt, einangrað og klætt að utan, gluggar eru ál/ tré og er húsið því viðhaldslétt. Góð bílastæði eru framan við húsið. Innréttingar eru frá HTH og eru hreinlætis og eldhústæki vönduð.
Þetta er einstaklega vel skipulögð og falleg íbúð í góðu húsi Úlfarsárdal. Stutt labb í skóla, leikskóla, íþróttahús og sundlaug.
Nánari upplýsingar veitir Atli S. Sigvarðsson fasteignasali í síma 899-1178 eða atli@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Urðarbrunnur 23
Staðsetning
Allar 47 myndir
Upp ↑













































