1 af 41
Um eignina
Jöfur atvinnuhúsnæði s. 534-1020 kynnir:
Til sölu heil húseign á frábærum stað, iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði að Selhellu 11, 221 Hafnarfirði, alls 1.783,7 m².Stærstur hluti hússins er lager- og iðnaðarsalur, um 1.200 m². Mikil lofthæð er í sal eða um 7 metrar. Gámahleðsludyr eru tvær í suður og innkeyrsludyr 4,3 m. á hæð eru í norður.
Inn af salnum er lyftarageymsla og kaffistofa. Gólf eru steypt og rykbundin. Öll gerð húsnæðisins og aðkoma býður upp á gott vöruflæði inn sunnanmegin um gámahleðsludyr og út norðanmegin fyrir sendiferðabíla og afgreiðslu. Vatnsúðakerfi (sprinkler) er í lagerhluta hússins. Upphitun í sal er með gólfhitakerfi.
Skrifstofuhluti hússins er glæsilega hannaður og er á tveimur hæðum. Á jarðhæð eru um 235 m² andyri og skrifstofurými og á 2. hæð eru um 338 fm. skrifstofurými sem er að mestu opin vinnurými. Fundaherbergi og næðisrými eru innan um opin vinnurými. Gólfefni eru blanda af teppaflísum, parketi og flísum. Lagnastokkar eru með veggjum og vönduð lýsing í lofti. Miðstöðvarofnar eru á skrifstofum.
Um 59 bílastæði eru merkt á lóðinni skv. teikningu.
Um er að ræða leigulóð í eigu Hafnarfjarðar.
Nánari upplýsingar veita Magnús Kristinsson, löggiltur fasteignasali, 861-0511, magnus@jofur.is og Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali, 824-6703, olafur@jofur.is
----------------------------------
Kaupandi greiðir stimpilgjald af kaupsamningi, sem er 1,6% fyrir lögaðila af fasteignamati eða samkvæmt annarri upphæð sem sýslumaður ákveður hverju sinni. Greiði kaupandi hluta kaupverðs með láni, þá greiðir hann lánveitanda lántökugjald og skjalagerðarkostnað. Kaupandi greiðir allan kostnað við yfirtöku áhvílandi lána. Kaupandi greiðir þinglýsingu kaupsamnings, afsals og veðskjala og er kostnaður við það kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Kaupandi greiðir umsýslugjald til Jöfurs ehf. að fjárhæð kr. 82.460 ,-
Hafðu beint samband við starfsmenn Jöfurs:
Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali - 863-5868
Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali - 897-7086
Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali - 824-6703
Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali - 861-0511
Kynntu þér fleiri eignir og þjónustu Jöfurs atvinnuhúsnæðis á www.jofur.is
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurÍ sölu núnaÁsett verð · Jöfur atvinnuhúsnæði
795.000.000 kr.446 þ./m²
+76,7% á 5 árum
1. desember 2021Fyrsta sala
450.000.000 kr.252 þ./m²
Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Selhella 11
221 Hafnarfjörður
795.000.000 kr.446 þ./m²
Atvinnuhúsnæði
Byggingarár2012TegundAtvinnuhúsnæðiStærð1783,7 m²FasteignanúmerF23066555Fasteignamat462.500.000 kr.Brunabótamat677.750.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 41 myndir
Upp ↑







































