fasteignasölur.is
Tjarnarlundur 12 íbúð 301
1 af 19

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur 466 1600
 

Tjarnarlundur 12e - Mikið endurnýjuð 4ra herbergja íbúð í fjölbýli á góðum stað í Lundahverfi - stærð 75.8 m²

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sér geymslu á jarðhæðinni.

Búið er að gera breytingar á innra skipulagi eignar, eldhúsinnrétting hefur verið færð inn í stofu og þriðja svefnherbergið útbúið þar sem eldhúsið var áður. 

Forstofa með harðparketi á gólfi, hvítum skáp og opnu hengi. 
Í eldhúsi er nýleg ljós innrétting með flísum milli skápa, dökkri bekkplötu og opnum efri hillum. Stæði er í innréttingu fyrir uppþvottavél. 
Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem harðparket er á gólfi, stór vestur gluggi og hurð út á steyptar og flísalagðar vestur svalir.   
Svefnherbergin eru þrjú, öll með harðparketi á gólfi og tvö með fataskápum. 
Baðherbergið er með dökkum flísum á gólfi og þiljum á tveimur veggjum, ljósri innréttingu, speglaskáp, walk-in sturtu, wc og handklæðaofni. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi. 
Á jarðhæðinni er sér geymsla

Annað
- Eignin hefur verið mikið endurnýjuð, nýtt eldhús, baðherbergi, gólfefni að stærstum hluta, rafmagnstenglar o.fl.
- Nýlegur mynddyrasími.
- Húsið málað að utan og múrviðgert 2021.
- Gler og listar endurnýjað í íbúð og stigagangi.
- Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er á jarðhæð.
- Góð staðsetning þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, íþróttasvæði KA og ýmsa verslun og þjónustu. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Tjarnarlundur 12 íbúð 301

600 Akureyri
51.900.000 kr.685 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1975TegundFjölbýlishúsStærð75,8 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF21512373Fasteignamat43.350.000 kr.Brunabótamat43.200.000 kr.
Skráð hjá
Hvammur Fasteignasala
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 19 myndir

Upp ↑