fasteignasölur.is
Dalbrekka 14
1 af 22

Um eignina

Borg fasteignasala kynnir: Falleg og björt tveggja herbergja íbúð með bílastæði í kjallara við Dalbrekku 14 í Kópavogi. Yfirbyggðar svalir.

Nýleg og vel skipulögð íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi. Íbúðin er á frábærum stað, miðsvæðis í Kópavogi þar sem örstutt er í alla almenna þjónustu og samgönguæðar ásamt göngustígum og útivistarsvæðum. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í bílageymslu og rúmgóð sérgeymsla. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 56 m2 og geymslan 11m2. Samtals 67m2.

Nánari lýsing:
Inngangur:
 Gengið er beint inn í íbúðina frá sameign nálægt lyftunni.
Forstofa: Með harðparketi á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Eldhús: Falleg innrétting með spanhelluborði, gufugleypi og innbyggðri uppþvottavél. AEG ofn í borðhæð og ísskápur með frysti í innréttingu. Harðparket á gólfi.
Stofa: Stofa og eldhús flæða í opnu björtu rými með stórum glugga og útgengi út á rúmgóðar yfirbyggðar svalir með útsýni til austurs.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Hvít innrétting með brúnni borðplötu og sturta með glervegg. Upphengt salerni og handklæðaofn. Innrétting og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi: Rúmgott með stórum veggháum fataskápum.
Mynddyrasími er í íbúðinni.

Aðstaða og aðgengi:
Íbúðinni fylgir sérmerkt stæði í bílageymslu, með möguleika á að setja upp hleðslustöð.
Sérgeymsla í sameign auk hjóla- og vagnageymslu.

Húsið er vel staðsett með góðu aðgengi að stofnæðum, almenningssamgöngum og allri þjónustu. Stutt í leikskóla, sund og fallegar gönguleiðir eru í  næsta nágrenni. Frábær eign á eftirsóttum stað í Kópavogi, fyrir þá sem vilja búa í nútímalegu, snyrtilegu og vel skipulögðu umhverfi með öllum helstu þægindum.

Upplýsingar veitir Davíð Ólafsson fasteignasali í síma 897-1533 eða david@fastborg.is

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Borg Fasteignasala
67.500.000 kr.1007 þ./m²
+45,2% á 6 árum
4. mars 2021Fyrsta sala
46.500.000 kr.694 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Dalbrekka 14

200 Kópavogur
67.500.000 kr.1.007 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2019TegundFjölbýlishúsStærð67 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF23673215Fasteignamat64.200.000 kr.Brunabótamat49.680.000 kr.
Skráð hjá
Borg Fasteignasala
HeimilisfangSíðumúli 23, 108 ReykjavíkSími519-5500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 22 myndir

Upp ↑