fasteignasölur.is
Selásbraut 108
1 af 41

Um eignina

RE/MAX, Guðlaug Jóna lgf og Garðar Hólm lgf. kynna:
 
Nýjar og glæsilegar íbúðir í lyftuhúsi að Selásbraut 98-108 í Árbæ, Reykjavík. Stærðir eru frá 58,3 – 230,3 fm. 25 íbúðir með sérmerktum stæðum á bílaplani. Íbúðirnar skilast fullbúnar, án gólfefna, með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél og með svalalokun (nema þær sem eru á jarðhæð). Gólfhiti er í öllum íbúðum ásamt loftskiptikerfi. Afhending er í september 2025.

Frábær staðsetning þar sem stutt er í útivistarperluna við Heiðmörk og Rauðavatn. Einnig er mjög stutt í leik- og grunnskóla, sundlaug og matvörubúð. 

Nánari upplýsingar veita Guðlaug Jóna lgf. í síma 661-2363 eða gulla@remax.is, Garðar Hólm lgf. í síma 899-8811 eða gardar@remax.is og Bjarný Björg lgf. í síma 694-2526 eða bjarny@remax.is

 
Íbúð 205 er glæsileg þriggja herbergja íbúð á 2. hæð með sérmerktu stæði á lóð. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin 92,5 fm, þar af er geymsla í kjallara 10,4 fm. Útgengt er á tvennar yfirbyggðar svalir. Annars vegar 9,1 fm og 4,4 fm. 
 
Við hönnun hússins er tekið mið af því að lágmarka viðhald. Húsið er einangrað að utan með álklæðningu í tveimur mismunandi litum og gluggar eru úr ál-tré.



Íbúð: 205
Hæð: 2
Tegund: 3ja herbergja 
Stærð: 92,5 m² 
Geymsla: 10,4 m² 
Svalir: Samtals 13,5 m² 

Helstu atriði við frágang innandyra:
Innréttingar frá Voke III
Borðplötur í eldhúsi eru almennt úr 20 mm þykkum HPL (high pressure laminate) með ljósu yfirborði. Á baðherbergjum eru borðplötur úr hvítum Durastone með samlímdum vaski.
Eldhústæki frá AEG, spanhelluborð, ofn, uppþvottavél, háfur og ísskákpur.
Gólf baðherbergja eru flísalögð með 60 x 60 cm flísum frá Agli Árnasyni.
Hvítar innihurðir eru frá Agli Árnasyni.
Hús er klætt að utan með vandaðri báruálklæðningu frá Málmtækni.
Gluggar og svalahurðir eru úr ál-tré frá Húsasmiðjunni. Allt gler er K gler eða sambærilegt skv. byggingarreglugerð.
Blöndunartæki eru frá Grohe.
 
Nánari lýsing:
Forstofa: Fataskápur upp í loft.
Eldhús: Falleg innrétting með spanhelluborði, innfelldur ísskápur og uppþvottavél, bakaraofn.
Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými með eldhúsi. Opið og bjart rými. Útgengt út á svalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott með fataskáp upp í loft. Þaðan er útgengt á svalir í gegnum rennihurð.
Herbergi II: Rúmgott með fataskápum upp í loft.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni, sturta með glerskilrúmi og innrétting undir og við handlaug. Handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, góðir skápar við þvottaaðstöðu.
Svalir: Útgengt er út á tvennar svalir þar sem eru gólfsíðir gluggar og rennihurð. Annarsvega 9,1 fm og hins vegar 4,4 fm.
Geymsla: Er í sameign í kjallara 10,4 fm. 
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara.
Yfirbyggt hjólaskýli er fyrir utan húsið. 

**ATH myndirnar eru teknar í sýningaríbúð hússins sem er íbúð 309**

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati þegar það verður lagt á fasteignina.

Nánari upplýsingar veita Guðlaug Jóna lgf. í síma 661-2363 eða gulla@remax.is, Garðar Hólm lgf. í síma 899-8811 eða gardar@remax.is og Bjarný Björg lgf. í síma 694-2526 eða bjarny@remax.is

Selásbraut 108

110 Reykjavík
86.900.000 kr.939 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2025TegundFjölbýlishúsStærð92,5 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF253441716Fasteignamat75.200.000 kr.Brunabótamat62.900.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 41 myndir

Upp ↑