fasteignasölur.is
Hafnarstræti 99-101 (202)
1 af 13

Um eignina

Íbúð í miðbæ Akureyrar - Hér er frábær eign á besta stað á Akureyri. 

Domusnova fasteignasala hefur til sölu íbúð á besta stað í miðbæ Akureyrar. Um er að ræða eign 02-02 sem er 61,6 fm. skrifstofuhúsnæði að Hafnarstræti 99-101, við göngugötuna á Akureyri sem hefur verið innréttuð sem 2ja herbergja íbúð á smekklegan á 2. hæð. Á jarðhæð hússins eru verslanir en á efri hæðum íbúðir, skrifstofur og ýmisskonar rekstur. Sameignlegur inngangur, sameiginlega stórar þaksvalir og sameiginlegt þvottahús með tveimur öðrum íbúðum. Staðsetning eignar er vinsæl og eftirsótt þar sem stutt er í allt og flest er í göngufæri.

Lýsing eignar:
Aðkoma inn í íbúð er sameiginleg, gengið er inn götumegin upp á 2. hæð og er hægt að ganga beint af hæðinni út á stórar sameigninlega þakverönd. Þvottahús/geymsla er í sameign á gangi fyrir framan íbúðir. Rýmið hefur verið talsvert endurnýjað og lítur vel út. 
Forstofa: Komið er inn í opið rými. Harðparket á gólfi.
Stofa: Björt stofa sem snýr að göngugötu. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Snyrtileg dökk innrétting með hvítum efri skápum. Eldavél. Örbylgjuofn. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi: Fataskápur. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting með skúffum. Upphengt salerni. Walk-in sturta. Handklæðaofn. Dökkar flísar á gólfi.

Allt innbú fylgir með í kaupum.

--------------------------------------------------

Annað:
* Fasteignagjöld 2025 (Vatns-og fráveitugjöld eru innheimt með fasteignagjöldum).
Heildarálagning fyrir árið kr. 355.142 // 44.392 pr. mán.
* Húsfélag: Starfandi húsfélag er í húsinu og er greitt um kr. 18.645.- á mánuði í hússjóð. Húsfélagið hefur ákveðið að semja við Eflu um úttekt á húsinu og forgangsraða viðgerðum í A B og C flokk, eftir því hversu nauðsynlegar viðgerðir teljast, þannig að hugmyndin er að byrja á því að laga það sem telst bráðnauðsynlegt, ekki annað. Það er nýbúið að skipta um 30 glugga á efri hæðum þannig að það er búið að vera að vinna eitthvað í viðhaldi undanfarið og húsfélagið á framkvæmdasjóð sem ætti að dekka úttektina. Beðið er eftir yfirlýsingu húsfélags en Eignaþjónusta Akureyrar ehf. heldur utanum húsfélagið.
* Hlufallstölur í lóð og heildarhúsi er 1,597% fyrir íbúð 202


Nánari upplýsingar veita:
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Sjöfn Hilmarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.691 4591 / sjofn@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Hafnarstræti 99-101 (202)

600 Akureyri
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð61,6 m²Svefnherb.1Baðherb.1
39.900.000 kr.648 þ./m²
Byggingarár1939InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2319446Fasteignamat18.250.000 kr.Brunabótamat30.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmári 4, 2. hæð, 201 KópavogurSími527-1717

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 13 myndir

Upp ↑