fasteignasölur.is
Vogatunga 16
1 af 41

Um eignina

269,6 fm raðhús á tveimur hæðum með aukaíbúð, bílskúr og einstöku útsýni við Vogatungu 16 í Kópavogi.
Samkvæmt HMS er eignin skráð alls 269,6 fm, þar af 240,1 fm íbúðarrými og 29,5 fm bílskúr.

Nánari lýsing:

Efri hæð: Gengið er inn á efri hæð í anddyri með hringstiga. Stofa, sjónvarpsstofa og borðstofa í opnu og björtu alrými með útgengi á svalir með fallegu útsýni. Eldhús með ofni í vinnuhæð, helluborði með viftu yfir og tengi fyrir uppþvottavél. Á hæðinni eru tvö herbergi ásamt baðherbergi með walk-in sturtu, vegghengdu salerni og handklæðaofni.
Neðri hæð: Skiptist í stórt herbergi sem hægt að er skipta í tvö herbergi, rúmgott þvottahús, baðherbergi, geymslu og rúmgóða 2ja til 3ja herbergja aukaíbúð með stóru svefnherbergi sem auðvelt er að skipta í tvö herbergi. Frá neðri hæð er útgengt á rúmgóða pallverönd með heitum potti og stiga upp á svalir efri hæðar.

Aðskilinn bílskúr er fyrir ofan götu á móti raðhúsalengjunni.
ATH. teikningar eru ekki samræmi við núverandi skipulag.

Skv. seljanda hafa eftirfarandi framkvæmdir farið fram síðustu ár:

- Eldhús endurnýjað og stækkað á kostnað stofunnar árið 2004
- Lóðin og pallur endurnýjaður og heitum potti komið fyrir c.a. 2013-2014
- Baðherbergi á efri hæð endurnýjað 2014-2015.
- Hellulagt fyrir framan skjólgirðingu 2020.
- Gluggar og svaladyr endurnýjað 2023.
- Húsið heilmálað að utan 2025.

Um er að ræða eign á eftirsóttum stað í Kópavogi sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, glæsilegt útsýni og stutt í alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Arnór Daði Eiríksson löggiltur fasteignasali í s. 777-0939 / arnor@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Vogatunga 16

200 Kópavogur
144.900.000 kr.537 þ./m²
Rað-/parhús5 svefn · 2 bað
Byggingarár1968TegundRað-/parhúsStærð269,6 m²Herbergi7InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF20661106Fasteignamat146.150.000 kr.Brunabótamat119.600.000 kr.
Skráð hjá
Ás
HeimilisfangFjarðargata 17, 220 HafnarfjörðurSími520-2600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 41 myndir

Upp ↑