fasteignasölur.is
Grásteinsmýri 3 - íbúð 202 NÝTT INN
1 af 21

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

Eignamiðlun auglýsir 2ja - 4 herbergja íbúðir í nýbyggingu við Grásteinsmýri 3, 225 Álftanesi. Um er að ræða 21 íbúð, stærðir frá 62,3 fm - 130,9 fm. Afhending íbúða er áætluð í nóvember 2026. Sýnum daglega, bókið skoðun hjá sölumanni.

Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann löggiltur fasteignasali í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is


Íbúð merkt 202 - 3ja herbergja 96,9 fm íbúð á annari hæð með tveim svefnherbergjum og rúmgóðum svölum. Rúmgott svefnherbergi og minna barnaherbergi, baðherbergi flísalagt með góðum sturtuklefa, eldhús opið inn í borðstofu og stofu. Sér þvottahús innaf eldhúsi með gólfhita. Næg bílastæði fylgja húsinu á lóðinni. Virkilega vel skipulögð íbúð.
Heimasíða fyrir verkefnið smellið hér 
Nánari lýsing:
Komið er inn forstofu með fataskápum.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtuklefa. Handlaug, handklæðaofn og upphengt salerni. Flísar á gólfum og veggjum.
Eldhús: Eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi frá Axis. Ofn í vinnuhæð, góð vinnuaðstaða. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél frá AEG. Þvottahús inn af eldhúsi.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi. Barnaherbergi með skápum.
Stofa/ borðstofa: Rúmgóð setustofa og borðstofa opið inn í eldhús. Gengið er út á sérafnotarétt út frá stofu, stór rennihurð.
Geymsla í kjallara hússins er 6,4 fm.

Íbúðirnar verða afhentar án gólfefna, nema á votrýmum sem verða flísalögð. Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign) 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.

Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - gunnarbergmann@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Grásteinsmýri 3 - íbúð 202 NÝTT INN

225 Garðabær
84.900.000 kr.876 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2026TegundFjölbýlishúsStærð96,9 m²Herbergi3InngangurSérinngangurLyftaFasteignanúmerF25399134Fasteignamat57.400.000 kr.
Skráð hjá
Eignamiðlun
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑