fasteignasölur.is
Þorláksgeisli 64
1 af 67

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 og Betri Stofan kynna: Raðhús með 4 svefnherbergjum á glæsilegum útsýnisstað við Þorláksgeisla 64 í Grafarholti. Húsið er vel skipulagt á tveimur hæðum með útsýni í suður. Útsýni yfir innsta hlutann á golfvöll GR. Innkeyrsla er hellulögð með snjóbræðslukerfi. Bílastæði fyrir 4 bíla framan við hús.
Eignin er skráð 203,3 fm og þar af er bílskúr 28 fm.  Á neðri hæð er anddyri, snyrting, 2 svefnherbergi, sjónvarshol, endurnýjað baðherbergi, þvottahús og geymsla ásamt bílskúr. Á efri hæð hússins eru 2 svefnherbergi, eldhús, stofa og borðstofa, svalir, baðherbergi og útgengt út í garð með köldum potti og sauna. Lokaður garður.

Nánari lýsing:
Anddyri - Góðir skápar sem ná upp í loft, Flísar á gólfi og gólfhiti.
Bílskúr: Er 20,3 fermetrar að stærð, epoxy gólf, heitt og kalt vatn. Bílskúrshurð er fellihurð með rafmagnsopnun.
Herbergi 1 - Ágætlega rúmgott herbergi  með parketi á gólfi. Skráð 10,1 fm innramál. 
Herbergi 2 - Ágætlega rúmgott herbergi  með parketi á gólfi. Skráð 11,3 fm innramál. 
Þvottahús og geymsla - Flísalagt, Vaskur og tenglar fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla - Er staðsett í þvottahúsi, flísar á gólfi, góðar hillur. 
Baðherbergi - Endurnýjað með sturtu. upphengt salerni og flísar á gólfi með gólfhita. 
Sjónvarpshol -  Rúmgott sjónvarpshol með parketi á gólfi.
Gengið upp steyptan teppalagðan stiga. Vandað glerhandrið.
Efri hæð: 
Eldhús - Ljós nýleg eldhúsinnrétting. Steinn á borðplötu. Gashelluborð. Dökkar flísar á gólfi.
Alrými: - stofa/borðstofa - Bjart alrými með mikilli lofthæð og stórum gluggum, innfelld lýsing í loftum. Glæsilegt útsýni er yfir golfvöll GR. Parket á gólfi. Útgengt á rúmlega 10 fm svalir frá stofu til suðurs.
Hjónaherbergi 3 - Er ágætlega rúmgott með fataskápum og með parketi. Stærð: 14,2 fm innramál.
Herbergi 4 - Ágætlega rúmgott svefnherbergi  með parketi á gólfi. Skráð 12,5 fm innramál. 
Baðherbergi - Er með flísum í hólf og gólf, með hornbaðkari, upphengt wc, innrétting, gólfhiti, handklæðaofn
Gólfhiti er í allri eigninni. 
Innkeyrsla er hellulögð með snjóbræðslukerfi. Bílastæði fyrir 4 bíla framan við hús.

Nánasta umhverfi:
Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknaverðum stað við Þorláksgeisla. Stutt er í flesta þjónustu og verslarnir, skóla og leikskóla. Stutt í golfvöll GR í Grafarholti og Fallegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni.  

Allar nánari uppl.  veitirJason Kristinn Ólafsson, sími 7751515, löggiltur fasteignasali. www.betristofan.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Þorláksgeisli 64

113 Reykjavík
155.900.000 kr.767 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 2 bað
Byggingarár2004TegundRað-/parhúsStærð203,3 m²Herbergi5InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF226475016Fasteignamat138.800.000 kr.Brunabótamat94.910.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 67 myndir

Upp ↑