fasteignasölur.is
Úugata 86
1 af 8

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

Úugata 86,  234.0 fm 6-7 herb. hús á tveimur hæðum á mjög góðum útsýnisstað í Helgafellslandinu í Mosfellsbæ. Húsið er samtals 234 fm að stærð með bílskúr og mögulegri "stúdíóíbúð" á neðri hæð. Húsið er í byggingu og gert ráð fyrir að afhenda það í október 2026 og afhendist húsið fullfrágengið að utan með að mestu frágenginni lóð en á byggingarstigi 3 að innan þ.e. tilbúnu til innréttingar. Sjá nánar í skilalýsingu.

Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 252-4867, nánar tiltekið eign merkt 01-01, birt heildarstærð er um 234.0 fm. Svalir eru út frá efri hæð og eru ca 51 fm að stærð. 

Eignin skiptist í:
NEÐRI HÆÐ: Stúdíóíbúð, baðherbergi, tvö svefnherbergi, og fjölskyldurými/herbergi. 
EFRI HÆÐ: Anddyri, innangengt í bílskúr, herbergi/skrifstofa, snyrting með sturtu, alrými sem er eldhús og stór stofa, gengið út á stórar svalir. 
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.

Nánari lýsing eignarinnar:
EFRI HÆÐ/INNGANGSHÆÐ:
Rúmgott anddyri , herbergi /skrifstofa. Snyrting með sturtuaðstöðu. Eldhús, opið að hluta yfir í rúmgóða stofa , gengið út á stórar svalir í L. Innangengt úr forstofu í góðan bílskúr. Steyptur stigi milli hæða.
NEÐRI HÆÐ: Stúdíóíbúð með sérinngangi en innangengt í aðaleign. Er eldhús, baðherbergi og alrými. Á neðri hæð eru einnig: Rúmgott hjónaherbergi, fjölskylduherbergi og tvö önnur herbergi ásamt baðherbergi með þvottaaðstöðu. 
Húsið verður afhent í september 2026.
SKILALÝSING: HÚSIРAÐ UTAN OG LÓÐ: Húsið afhendist fullfrágengið að utan, staðsteypt hús. Húsið er almennt klætt með standandi Bemo klæðningu ral 9005 á álundirkerfi frá Byko.Timburklæðning er við inngang og frá svölum. Gluggar Í húsinu eru álklæddir timburgluggar svartir að lit. Lóð er frágengin að mestu. Á lóð eru 3 steypt bílastæði og gönguleið að húsi, með snjóbræðslu.  Sportunnuskýli fyrir 3 sorptunnur eru við bílaplan. Svalir ,handrið úr tvöföldu 8mm samlímdu hertu gleri. Göngustigi niður í garð á 1 hæð, komið á steypta munstursteypu sem er afmörkuð á grunnmynd 1 hæðar. Heitur og kaldur pottur með útisturtu. Snjóbræðsla í steypu ,lóð.
HÚSIÐ AÐ INNAN: Gólf verða flotuð og rykbundin. Veggir: steyptir veggir eru sparslaðir og grunnaðir í hvítum lit. Léttir innveggir verða hlaðnir úr gipssteini, spaslaðir og grunnaðir í hvítum lit. Gert ráð fyrir að veggir í baðherbegjum séu ófrágengnir að hluta(nema um annað verði samið). Loft spaslað og grunnað í hvítum lit.
Rafkerfi : Inntak og rafmagnstafla uppsett í bílskúr. Gert er ráð fyrir hleðslustöð fyrir rafbíl. Dregið verður í Lagnir.
Útiljós eru uppsett á húsi. Lagnir og hitakerfi:  Inntak hita og neysluvatns er frágengið, en án hitastýringar. Gólfhitakerfi er í húsinu frágengið með hitastýringu. Neysluvatn lagt í gólf og veggi skv. teikningum. Lagnaleið fyrir útisturtu, heitan kaldan pott er út á verönd. Húsið er hitað upp með hefðbundnu gólfhitakerfi. Hámarkshiti á heitu vatni eru 60°C. Stofninntak neysluvatnslagna er tengt og frágengið. Neysluvatnskerfi er með forhitara. Loftskiptikerfi verður í húsinu samkvæmt teikingu af SYSTEMAIR gerð uppsett og fullfrágengið af Blikksmiðnum HF 
Kaupendur greiða skipulagsgjald þ.e 0,3 % af endanlegu brunabótamati þegar það verður innheimt. 
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn M. Friðgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 899-1882, tölvupóstur thorarinn@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Úugata 86

270 Mosfellsbær
159.000.000 kr.678 þ./m²
Einbýlishús5 svefn · 3 bað
TegundEinbýlishúsStærð234,5 m²Herbergi8InngangurTveir inngangarBílskúrFasteignanúmerF252486717Fasteignamat20.800.000 kr.
Skráð hjá
Eignamiðlun
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 8 myndir

Upp ↑