fasteignasölur.is
Hraunbær 151
1 af 34

Um eignina

Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignsali kynna glæsilega, bjarta og rúmgóða tveggja herbergja íbúð í Hraunbæ 151. Íbúðin er á jarðhæð, merkt 105. Lyfta í húsinu. Afar vel skipulögð og falleg tveggja herbergja íbúð á góðum stað í Árbænum. Íbúðin er nánast ný en húsið var byggt 2023.

Samkvæmt HMS er íbúðin 71,3 fm. Eigninni tilheyrir sérgeymsla, birt stærð 8,2 fm. 

Allar nánari upplýsingar veita Hallgrímur Hólsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is og Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali með tölvupósti á kristjan@trausti.is.

Nánari lýsing. 

Eldhús með fallegri hvítri og grárri innréttingu. Gott skápa og borðpláss. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð og fylgja því með.
Stofa er í alrými með eldhúsi og útgengt á svalir úr stofu.
Baðherbergið er með góðri ljósri innréttingu, upphengdu salerni, sturtuklefa með "walk-in" sturtu og þvottaaðstöðu. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Herbergið er stórt með góðum fataskápum.
Fallegt harðparket er á íbúðinni. 
Geymsla í kjallara 8,2 m2 ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.
Sameign er snyrtileg og er lyfta í húsinu.
Gólfhiti er í íbúðinni.
Mynddyrasími.

Þessi eign hentar afar vel fyrir fyrstu kaupendur. Frábær staðsetning í nýju húsi á góðum stað í Árbænum. Nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 8966020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is og Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali með tölvupósti á kristjan@trausti.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
59.900.000 kr.840 þ./m²
+3,3% á 3 árum
5. október 2023Fyrsta sala
58.000.000 kr.813 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hraunbær 151

110 Reykjavík
59.900.000 kr.840 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2023TegundFjölbýlishúsStærð71,3 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF25162905Fasteignamat59.400.000 kr.Brunabótamat49.700.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑