fasteignasölur.is
SPÁNAREIGNIR - Hacienda del Alamo
1 af 8

Um eignina

SPÁNAREIGNIR KYNNIR :
*NÝJAR OG GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR Á GOLFVELLI* *SÉR GARÐUR* *GEYMSLA OG SÉR STÆÐI*


Bjartar og rúmgóðar, vel hannaðar glænýjar íbúðir í litlu 3ja hæða fjölbýli við Hacienda del Álamo Golf Resort. Stór sameiginlegur sundlaugargarður með góðri sólbaðsaðstöðu og grænum svæðum. Ca. 110 mín. akstur frá Alicante, 40 mín akstur frá nýja Corvera flugvellinum í Murcia, 30 mín akstur í fallega strandbæinn Puerto de Mazarrón og 45 mín akstur til Cartagena. Tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, eldhús og borðstofa í opnu rými. Góðar svalir/verönd út frá stofu. Staðsett við glæsilegan golfvöll Hacienda del Alamo Golf Resort sem hefur verið æfingabækistöð íslenska landsliðsins í golfi.

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is. S: 893 2495
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is, S: +34 615 112 869


Gengið er inn í opið rými með eldhúsi, stofu og borðstofu. Góðir innbyggðir skápar við inngang. Tvö svefnherbergi með innbyggðum skápum. Tvö baðherbergi, og er annað þeirra beint inn af hjónasvítu. Öllum íbúðum fylgir geymsla og stæði í bílageymslu. Stór sameiginlegur sundlaugargarður með góðri sólbaðsaðstöðu og grænum svæðum. Ca. 110 mín. akstur frá Alicante, 40 mín akstur frá nýja Corvera flugvellinum í Murcia, 30 mín akstur í fallega strandbæinn Puerto de Mazarrón og 45 mín akstur til Cartagena. Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.

Sem stendur eru einungis tvær íbúðir eftir á jarðhæð með 200 fm sér garði.

Verð miðað við gengi 1 EUR=145 ISK.
Íbúð á jarðhæð með sérgarði 234.900 EUR (ISK. 34.100.00.000) + kostn.

Hagstæð fjármögnun í boði úr spænskum bönkum, sem auðveldar kaupin.

Spánareignir hafa selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir allt að 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í allt að 13%.

Eiginleikar: sér garður, sameiginlegur sundlaugargarður, air con, golf, sér stæði, 
Svæði: Costa Blanca, Hacienda del Alamo,

 

SPÁNAREIGNIR - Hacienda del Alamo

1000 Útlönd - Annað
34.100.000 kr.297 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð115 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF300250826
Skráð hjá
HeimilisfangHólmgarður 34, 108 Reykjavík, 108Sími893-2495

Allar 8 myndir

Upp ↑