fasteignasölur.is
Háaleitisbraut 119
1 af 123

Um eignina

CROISETTE kynnir í einkasölu rúmgóða og bjarta fimm herbergja íbúð við Háaleitisbraut 119 í Reykjavík. Eignin er á fjórðu og efstu hæð og er skráð 134,4 fm að stærð og skiptist í rúmgott eldhús, stóra stofu og borðstofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu og tvennar svalir. Þetta er reglulega falleg, vel skipulögð og rúmgóð eign í vinsælu hverfi, stutt í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is og Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA ÍBÚÐINA Í 3D UMHVERFI


Nánari lýsing:
Forstofa:
Rúmgóð forstofa með fataskápum. Harðparket á gólfi. 
Stofa og borðstofa: Rúmgóð og björt stofa og borðstofa, stórir gluggar með góðu útsýni. Harðparket á gólfi. Útgengi á góðar suðursvalir frá stofu, viðarklæðning á svalagólfi.  
Eldhús: Fallegt og rúmgott eldhús með góðu skápaplássi. Stór gaseldavél, gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu, innbyggð uppþvottavél. 
Hjónaherbergi: Gott herbergi með fataskápum. Harðparket á gólfi. Framan við hjónaherbergi er rými sem nýtt er í dag sem skrifstofa, þaðan er útgengt á litlar svalir. 
Barnaherbergi 1: Gott herbergi, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi 2: Gott herbergi, fataskápur, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi 3: Gott herbergi, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, góð innrétting með vaski, speglaskápur, baðkar með sturtuaðstöðu, salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Gestasnyrting: Falleg gestasnyrting með salerni og innréttingu með vaski. Flísar á gólfi og hluta veggja. 

Í sameign er 5,7 fm sérgeymsla ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Húsið lítur vel út að utan og var ytra byrði hússins mikið endurnýjað árin 2021 - 2022. 
 
Eigninni fylgir bílskúrsréttur.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
 

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Croisette Iceland ehf
87.900.000 kr.654 þ./m²
+87,0% á 6 árum
9. september 2020Þinglýstur kaupsamningur
47.000.000 kr.350 þ./m²
+51,6% á 5 árum
1. september 2015Þinglýstur kaupsamningur
31.000.000 kr.231 þ./m²
+23,0% á 8 árum
18. júlí 2007Fyrsta sala
25.200.000 kr.188 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Háaleitisbraut 119

108 Reykjavík
87.900.000 kr.654 þ./m²
Fjölbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1965TegundFjölbýlishúsStærð134,4 m²Herbergi5InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20153962Fasteignamat87.400.000 kr.Brunabótamat66.700.000 kr.
Skráð hjá
Croisette Iceland ehf
HeimilisfangKirkjuteigur 21, 105 RvíkSími569-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 123 myndir

Upp ↑