fasteignasölur.is
Meistaravellir 15
1 af 28

Um eignina

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Mikið endurnýjuð útsýnisperla, 5 herbergja endaíbúð með bílskúr í góðu húsi við Meistaravelli 15, Vesturbænum Rvk.

* Bílskúr skráður 23,6 m2
* Endurnýjað eldhús, parket og þvottahús uppgert með sturtu
* Stórir gluggar og fallegt útsýni til tveggja átta úr stofu
* 4 svefnherbergi


Viðhald hússins síðastliðin ár tiltelur ma.
2024 var rafmagnstafla í sameign endurnýjuð, frárennslislagnir yfirfarnar og endurnýjaðar að hluta.
2020-21 var húsið múrviðgert og málað að utan, endurnýjað gler og gluggar eftir þörfum, þakjárn yfirfarið endurbætt og málað. Endurnýjaðar þakrennur og niðurföll.

Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð samkv. HMS er 154,70 og þar af er íbúðin skráð 125,1 m2, sérgeymsla í sameign 6 m2 og bílskúr skráður 23,6 m2.

Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu / borðstofu, tvennar svalir, gang, 4 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr.
Anddyri er með parket á gólfi og fataskáp. Aukafataskápur er á stigapalli fyrir framan íbúð.
Eldhús er með sérsmíðaðri innréttingu frá Kvikk, virkilega gott skápapláss. Tvöfaldur bakarofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti. Parket á gólfi.
Stofa / borðstofa er opin að hluta með eldhúsi. Parket á gólfi og útgengt út á skjólgóðar Svalir til suð-vesturs. 
Gangur er með parket á gólfi.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi og fataskáp. Gluggar í tvær áttir og útgengt á Svalir til norðurs.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi.
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 4 er með parket á gólfi og góðu rými fyrir fatahengi.
Þvottahús er þar fyrir innan með, flísalagt og með góðri innréttingu með skolvask og tengi fyrir þvottavél / þurrkara, "walk-in" sturta
Baðherbergi er flísalagt með innréttingu með skúffum og skolvask, salerni, baðkari með sturtu-aðstöðu.

Bílskúr er upphitaður með heitu / köldu vatni.  
Í sameign í kjallara er sérgeymsla íbúðar og einnig hjóla / vagnageymsla.

Rúmgott, malbikað bílaplan og hellulögð stétt með snjóbræðslu upp við húsið. Stór, graslagður garður með sameiginlegu trampólíni.
Vinsæl og fjölskylduvæn saðsetning og örstutt í leik og grunnskóla, Háskóla Íslands, Sundlaug Vesturbæjar, íþróttasvæði KR, verslanir og þjónustu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Pálsson fasteignasala
119.900.000 kr.775 þ./m²
+96,6% á 7 árum
24. júní 2019Fyrsta sala
61.000.000 kr.394 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Meistaravellir 15

107 Reykjavík
119.900.000 kr.775 þ./m²
Fjölbýlishús4 svefn · 1 bað
Byggingarár1965TegundFjölbýlishúsStærð154,7 m²Herbergi5InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF20256865Fasteignamat101.650.000 kr.Brunabótamat67.680.000 kr.
Skráð hjá
Pálsson fasteignasala
HeimilisfangEngjateigur 3, 105 RekjavíkSímiPálsson

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑