fasteignasölur.is
Höfðabyggð  E02
1 af 26

Um eignina

EIGNAVER 460-6060

Höfðabyggð, sumarhús í  Fnjóskadal. 

Til sölu fallegur og vel skipulagður sumarbústaður á frábærum stað í Lundi við Vaglaskóg.   Höfðabyggð E02 er 58 fm. auk þess fylgir með geymsluskúr á lóð ( óskráður ).
 Rúmgóð verönd til suðurs og vesturs, með heitum potti, einstakt útsýni til allra átta og stutt í golfvallarsvæðið í Lundi.

Húsið skiptist í stofu, borðstofu og eldhús í einu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, forstofu og geymslurými sem gengið er í af palli við forstofudyr.


Nánari lýsing. 

Forstofa, flísar á gólfi, fatahengi og efri skápur.   
Hol/gangur, parket.
Svefnherbergin eru þrjú, parket á gólfum herbergja, fastar kojur eru í tveimur þeirra og fataskápur í hjónaherberginu. 
Baðherbergi, dúkur á gólfi, flísar á veggjum, góð innrétting og upphengt WC, hornsturta og gluggi með opnanlegu fagi.
Eldhús og stofa koma saman í einu rými. Falleg spónlögð eikar innrétting og parket á gólfi.  ATH: aukin lofthæð. 
Borðstofan er milli eldhúss og stofu, fallegir gluggar með miklu útsýni inn Fnjóskadal til suðurs. Við borðstofu er farið út á verönd. 

Annað:
- Mjög stór verönd er vestan og sunnan við húsið. 
- Húsið stendur á mjög stórri leigulóð ( 11.826 fm. ) á frábærum stað. 
- Heitur pottur. 
- Góð staðsetning, stutt á golfvöllinn.
- Geymsla er við inngang hússins. 
- Uppþvottavél og ísskápur fylgir með. 
- Innbú getur fylgt með utan persónulega muni seljanda.  
- Húsið var byggt árið 1995 og var upphaflega í Kjarnaskógi en var flutt í Lundskóg árið 2019.
- Húsið stendur á leigulóð frá landeiganda og er lóðarleiga um kr: 180.000. á ári. 


Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri. 

Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi          s: 862-7919   / tryggvi@eignaver.is
Arnar             s: 898-7011   / arnar@eignaver.is 
Begga           s: 845-0671   / begga@eignaver.is

Höfðabyggð E02

607 Akureyri (dreifbýli)
37.900.000 kr.653 þ./m²
Sumarhús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1995TegundSumarhúsStærð58 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF23391072Fasteignamat40.850.000 kr.Brunabótamat44.800.000 kr.
Skráð hjá
Eignaver fasteignasala ehf.
HeimilisfangHafnarstræti 97 (Krónan), 600 AkureyriSími460-6060

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑