fasteignasölur.is
Laugavegur 39
1 af 36

Um eignina

Miklaborg kynnir: Glæsileg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með sérmerktu bílastæði við Laugaveg 39 í 101 Reykjavík. Eignin er skráð 123,3, með henni fylgir sérmerkt bílastæði á baklóð og rúmgóð 23,3 fm geymsla í kjallara. Eignin er í vel viðhöldnu fjölbýlishúsi sem var byggt árið 1942. Eignin skiptist í anddyri, tvö rúmgóð svefnherbergi, bjarta stofu, tvö baðherbergi, eldhús með eyju, svalir og bílastæði. Vel staðsett eign á eftirsóttum stað í 101 Reykjavík þar sem stutt er í verslanir, þjónustu, kaffihús, veitingastaði og sundlaug.

Gengið er inn í flísalagða forstofu með innbyggðum fataskáp. Loft er klætt með hljóðdempandi hnotuplötum og fallegri innbyggðri central lýsingu.
Íbúðin skiptist í:

  • Tvö rúmgóð svefnherbergi með eikarparketi og sérsmíðuðum innréttingum.
  • Stofu með eikarparketi og hnotupanil á vegg.
  • Tvö baðherbergi flísalögð í hólf og gólf, bæði með gólfhita. Annað með „walk-in“ sturtu og Ifø innréttingu frá Tengi, hitt með þvottaaðstöðu.
  • Eldhús frá HTH með innbyggðum tækjum, fallegri eldhúseyju úr límtré og helluborði.
  • Borðstofu með útgengi á svalir sem snúa í norður að friðsælli baklóð þar sem bílastæðið er.

Húsið hefur hlotið mikla endurnýjun, undanfarin ár m.a.:

  • 2015 Skipt um þak.
  • 2016 Stigagangur málaður
  • 2016-2018 Múrviðgerðir að utan; fraamhlið og bakhlið og svalir steyptar up og nýtt handrið og niðurföll endurnýjuð þar sem þurfti.
  • 2018 Gluggar málaðir og svalahurðir.
  • 2019 Ný teppi á stigagang og stigagangur málaður þar sem þurfti eftir breytingar. Aðalanddyri flísalagt.
  • 2020 Klæðning á svölum á 4. hæð.
  • 2021 Ný ljós með hreyfiskynjurum í stigagng og kjallara.
  • 2021 Skyggnið fyrir ofan 1. hæðina endurnýjað en viðgerð ekki lokið.
  • 2022 Þak þvegið og málað. Hiti íbúða sameinað á einn mæli ofl. smálegt.
  • 2023 vinna við skyggnið klárað.


Eignin er á vinsælum og eftirsóttum stað í miðborginni, þar sem stutt er í allar helstu verslanir, þjónustu, kaffihús, veitingastaði og sundlaug.


Fyrir nánari upplýsingar eða bóka skoðun:

Steinn Andri Viðarsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1477 eða Steinn@miklaborg.is

Kristín Avon Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 772-2959 eða kristinavon@miklaborg.is


Verðsaga

4 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Miklaborg
88.500.000 kr.718 þ./m²
+11,7% á 1 ári
27. desember 2025Þinglýstur kaupsamningur
79.250.000 kr.643 þ./m²
−7,3% á 3 árum
24. nóvember 2022Þinglýstur kaupsamningur
85.500.000 kr.693 þ./m²
+62,9% á 2 árum
9. nóvember 2020Þinglýstur kaupsamningur
52.500.000 kr.426 þ./m²
+14,1% á 4 árum
4. nóvember 2016Fyrsta sala
46.000.000 kr.373 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Laugavegur 39

101 Reykjavík
88.500.000 kr.718 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
Byggingarár1942TegundFjölbýlishúsStærð123,3 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2004766Fasteignamat88.300.000 kr.Brunabótamat53.450.000 kr.
Skráð hjá
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑